Eignasalan
Eignasalan

Fréttir

Boða breytingar í stjórn hjá HS Veitum á hluthafafundi
Mánudagur 13. júlí 2026 kl. 14:14

Boða breytingar í stjórn hjá HS Veitum á hluthafafundi

Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum, með þremur atkvæðum gegn tveimur, að fela Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að fara með atkvæði sveitarfélagsins á komandi hluthafafundi HS Veitna hf., sem haldinn verður 7. ágúst næstkomandi. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins greiddu atkvæði gegn tillögunni og lögðu fram bókun þar sem vinnubrögð nýja meirihlutans voru harðlega gagnrýnd.

Minnihlutinn telur bæjarstjóra fara út fyrir valdsvið sitt

Í bókun minnihlutans kemur fram að fulltrúar flokkanna furði sig á því að bæjarstjóri hafi óskað eftir því við forstjóra HS Veitna að boðað yrði til hluthafafundarins áður en fyrir lá samþykki eða bókun bæjarráðs þess efnis.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

„Enn og aftur kemur reynsluleysi nýs meirihluta fram þar sem bæjarstjóri hefur ekki heimildir til að taka slíkar ákvarðanir einn og sjálfur frekar en aðrar í nafni bæjarstjórnar,“ segir í bókuninni.

Þá vísar minnihlutinn til þess að lengi hafi verið í gildi samkomulag um að stjórn félagsins sitji fram að næsta reglulega aðalfundi, óháð sveitarstjórnarkosningum, og telja þeir ákvörðunina brjóta gegn þeirri hefð: „Slíkur gjörningur ber einungis merki um skort á heiðarleika og virðingu fyrir þeim hefðum sem í gildi hafa verið.“

Meirihlutinn vísar til lýðræðislegs umboðs kosninganna

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks hafnaði fullyrðingum minnihlutans í svofelldri svarbókun. Þar er á því byggt að samskipti við forstöðumenn fyrirtækja og stofnana sem sveitarfélagið á í samskiptum við falli undir daglegan rekstur og verksvið bæjarstjóra sem framkvæmdastjóra sveitarfélagsins. „Fullyrðing minnihlutans er því röng. Þar með hefur enn ein röng fullyrðing ratað inn í bókanir minnihlutans.“

Varðandi fyrirhugaðar breytingar á stjórn félagsins bendir meirihlutinn á að sveitarstjórnarkosningar hafi farið fram í maí síðastliðnum. Það samræmist grundvallarsjónarmiðum lýðræðisins að fulltrúar sveitarfélagsins í stjórnum félaga endurspegli þann vilja sem kjósendur lýstu í kosningunum sem fyrst:

„Það vekur því furðu að minnihlutinn telji eðlilegt að pólitískar skipanir, sem byggja á umboði frá sveitarstjórnarkosningunum árið 2022, vegi þyngra en það nýja umboð sem kjósendur veittu í kosningunum í maí 2026. Þegar kjósendur fela nýjum meirihluta ábyrgð á stjórn sveitarfélagsins er eðlilegt að það endurspeglist einnig í stjórnskipan þeirra félaga þar sem Reykjanesbær fer með eigendahlutverk.“

Eignasalan
Eignasalan