Eini urðunarstaðurinn á Suðurnesjum fær starfsleyfi
Reykjanesbær hefur nýverið fengið starfsleyfi fyrir urðun á óvirkum úrgangi á Njarðvíkurheiði. Um er að ræða mikilvæg tímamót í úrgangs- og umhverfismálum á Suðurnesjum þar sem svæðið er nú það eina sinnar tegundar í öllum landshlutanum sem hefur tilskilin leyfi til slíkrar urðunar. Málinu hefur nú verið vísað áfram til bæjarráðs þar sem ákvörðun um rekstrarfyrirkomulag verður tekin.
Jarðefnamóttaka sunnan Reykjanesbrautar
Jarðefnamóttökusvæðið er staðsett á Njarðvíkurheiði, nánar tiltekið sunnan megin við Reykjanesbrautina. Starfsleyfið sem sveitarfélagið fékk í hendurnar heimilar urðun á svokölluðum óvirkum úrgangi, en undir það falla meðal annars jarðvegsefni, steinsteypa, múrbrot og önnur óvirk byggingarefni sem taka ekki efnafræðilegum eða líffræðilegum breytingum í náttúrunni og menga því ekki grunnvatn eða umhverfi.
Umfangsmikill undirbúningur hefur átt sér stað á vegum umhverfis- og framkvæmdasviðs undanfarna mánuði til að gera svæðið tilbúið til móttöku á þessum efnum, en þau munu nýtast vel samhliða þeirri miklu uppbyggingu sem á sér stað á svæðinu.
Bæjarráð tekur ákvörðun um framhaldið
Þrátt fyrir að svæðið sé tæknilega tilbúið og starfsleyfið sé í höfn liggur endanlegt rekstrarfyrirkomulag jarðefnamóttökunnar ekki fyrir. Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, reifaði mismunandi möguleika á því hvernig daglegum rekstri yrði háttað.







