Fréttir

Suðurnesin taka þátt í evrópsku stórverkefni
Miðvikudagur 15. júlí 2026 kl. 10:39

Suðurnesin taka þátt í evrópsku stórverkefni

FoodPact eflir sjálfbærni og samkeppnishæfni matvælafyrirtækja

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) hefur hafið þátttöku í hinu evrópska Erasmus+ samstarfsverkefni FoodPact. Þetta þriggja ára verkefni miðar að því að efla sjálfbærni, færni og samkeppnishæfni lítilla og meðalstórra fyrirtækja í matvæla- og framleiðslugreinum í Evrópu. Heildarstyrkur til verkefnisins nemur rúmlega 812 þúsund evrum.

Verkefnið er leitt af Viðskiptaráði Reus-borgar á Spáni og fór upphafsfundur þess fram þar í maí síðastliðnum. Þar komu saman fulltrúar opinberra stofnana, viðskiptaráða, fræðsluaðila og sérfræðinga til að leggja línurnar fyrir komandi starf.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Stuðningur við smærri fyrirtæki á alþjóðlegum markaði

Á Suðurnesjum starfa öflug sjávarútvegs- og matvælafyrirtæki sem mörg hver eiga mikið undir á alþjóðlegum mörkuðum. Kröfur um sjálfbærni, umhverfisábyrgð og vottanir fara vaxandi og getur reynst smærri fyrirtækjum krefjandi að fylgja þeim eftir samhliða daglegum rekstri.

FoodPact á að brúa þetta bil með því að:

  • Þróa hagnýt verkfæri til að meta og efla sjálfbærni í rekstri.
  • Styrkja færniuppbyggingu stjórnenda og starfsfólks á svæðinu.
  • Auka samstarf á milli atvinnulífs og fræðsluaðila.

Með SSS í verkefninu eru tveir öflugir innlendir samstarfsaðilar: Fisktækniskóli Íslands, sem leggur til sérþekkingu á sviði starfs- og fullorðinsfræðslu í sjávarútvegi, og GeoCamp Iceland, sem færir verkefninu reynslu á sviði nýsköpunar, sjálfbærni og fræðslu.

Nýr samstarfsvettvangur og tenging við Grindavík

Einn af lykilþáttum verkefnisins er stofnun sérstakra svæðisbundinna samstarfsvettvanga (e. Community Food Education Hubs). Markmið þeirra er að tengja betur saman menntun og atvinnulíf til að tryggja markvissa hæfniuppbyggingu og nýsköpun.

Þessi nýi vettvangur mun nýtast vel í þeirri uppbyggingu sem þegar á sér stað á svæðinu. Horft er sérstaklega til samlegðaráhrifa við verkefnið Grindavík – saman í sókn, þar sem rík áhersla er lögð á að styðja við frumkvöðla og lítil og meðalstór fyrirtæki með sjálfbærni og efnahagslega seiglu að leiðarljósi.

Með þátttöku í FoodPact fá Suðurnesin mikilvægt tækifæri til að miðla og sækja þekkingu í evrópskt samstarf, sem mun styrkja langtíma samkeppnishæfni svæðisins og tryggja ábyrga nýtingu auðlinda til framtíðar.

Eignasalan
Eignasalan