Víkurfréttir bara í rafrænu formi í þessari viku
Útgáfa Víkurfrétta í þessari viku er frábrugðin því sem lesendur eiga að venjast. Að þessu sinni er blaðið bara rafrænt en ekki gefið út í prentuðu formi. Blaðið má lesa í spilara hér að neðan og í tölvu er hægt að hlaða niður PDF-útgáfu blaðsins fyrir þá lesendur sem vilja það frekar.
Næsta blað á prenti kemur út 29. júlí. Það er verslunarmannahelgarblað Víkurfrétta og verður stútfullt af áhugaverðu efni. Áhugaverð viðtöl og skemmtilegar frásagnir í bland við mannlífsefni af ýmsum toga.
Ábendingum um áhugavert efni má koma á framfæri við ritstjórn á póstfangið vf(hjá)vf.is






