Vogar skoða aukið samstarf við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
Ársreikningur og ársskýrsla Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum (MSS) fyrir árið 2025 voru lögð fram til kynningar á fundi bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga. Bæjarráð nýtti tækifærið og lýsti yfir mikilli ánægju með starfsemi miðstöðvarinnar.
Í bókun bæjarráðs kemur fram að ráðið fagni því fjölbreytta og mikilvæga starfi sem unnið er á vegum MSS, sem og framlagi stofnunarinnar til fræðslu, ráðgjafar og aukinna tækifæra fyrir íbúa á Suðurnesjum.
Þjónustan færð nær íbúum Voga?
Bæjarráð horfir nú til þess að dýpka samstarfið enn frekar. Bæjarstjóra hefur verið falið að eiga samtal við forsvarsmenn MSS til að kanna hvort tækifæri séu til að færa afmarkaða þjónustu og fræðslu á vegum miðstöðvarinnar nær íbúum í Sveitarfélaginu Vogum.







