Rólegasti mánuðurinn í útgerð á Suðurnesjum
Þá er júlímánuður kominn í gang, og þessi mánuður er nú iðulega rólegasti mánuðurinn í útgerð á Suðurnesjum.
Mjög margir eru komnir í stopp, en þó svo að það sé rólegt í útgerð þá er nóg um að vera í slippnum í Njarðvík. Töluvert margir bátar eru í slippnum, t.d. Óli á Stað GK, Kristján HF, Katrín GK, Steinunn SH, Egill SH, Sigurfari GK sem og fleiri bátar.
Fyrst ég er nú að skrifa um strandveiðina þá er rétt að líta á hvernig júní var á strandveiðunum. Sandgerði var fjórða stærsta höfnin á landinu miðað við fjölda báta en það voru 45 bátar sem lönduðu. Sömuleiðis var Sandgerði næststærsta höfnin á landinu varðandi landaðan ufsa, en það komu á land í Sandgerði 44 tonn af ufsa. Í Grindavík voru 11 bátar og fjórir bátar í Keflavík.
Aflahæsti báturinn sem landaði á Suðurnesjum var Grindjáni GK með 11,1 tonn í 12 róðrum og mest 2,1 tonn, þar á eftir kom Ólafur GK með 10,1 tonn í 12 og mest 1,8 tonn, báðir í Grindavík.
Þriðji var Guðrún GK í Sandgerði með 9,7 tonn í 11 róðrum og mest 2,1 tonn, en það má geta þess að Sævar, sem er skipstjóri og útgerðarmaður af Guðrúnu GK, réri líka á hinum bátnum sínum Guðrúnu GK í byrjun júní og þá með 2 tonn af grásleppu í tveimur róðrum. Hrappur GK var með 8,7 tonn í 12 í Grindavík, Jói á Seli GK með 8,7 tonn í 12 og mest 1,4 tonn í Sandgerði. Una KE 8,3 tonn í 11 í Sandgerði. Hawkerinn GK var í 7. sætinu með 7,9 tonn í 12, en það má geta þess að Hawkerinn GK var hæstur í maí. Sandvík GK var númer 8 með 7,5 tonn í 12 og Sæfari GK með 7,3 tonn í 12 báðir í Sandgerði. Stakkur GK var með 7,2 tonn í 12 í Grindavík.
Um miðjan júní hættu tveir bátar á strandveiðum og hófu færaveiðar á ufsanum. Þetta voru systurbátarnir Sindri GK og Ragnar Alfreðs GK. Sindri GK var með 6,7 tonn í 4 róðrum í júní og Ragnar Alfreðs GK með 9,1 tonn í fimm róðrum og þar af 8,5 tonn í þremur róðrum á ufsanum og þar af 5,7 tonn í einni löndun.
Færabáturinn Guðrún GK hætti á strandveiðum í lok júní og fór yfir á ufsann, og fyrsti róður gekk ansi vel, því báturinn kom með 4,5 tonn til Sandgerðis.
Aðalbjörg RE er eini dragnótabáturinn sem er á veiðum en bátnum gekk vel í júní, hann var með 159 tonn í 16 róðrum og mest 16,8 tonn. Núna það sem af er júlí hefur Aðalbjörg RE landað um 14 tonnum í 2 róðrum.
Netabáturinn Grímsi GK, sem varð næstum því rauður á litinn en endaði svo með sama lit, bláan, er kominn á ufsaveiðar í netin. Hann byrjaði að veiða á Selvogsbanka og færði sig síðan austur fyrir Vestmannaeyjar. Báturinn byrjar nokkuð vel því Grímsi GK hefur landað tvisvar í Þorlákshöfn um 35 tonnum og þar af 19,5 tonnum í einni löndun. Af þessum afla eru um 31 tonn af ufsa.
Emma Rós KE sem hóf netaveiðar á ufsa í Röstinni í júní var einungis með 2 landanir, alls um rúm 10 tonn. Báturinn hefur ekki hafið veiðar í júlí enn sem komið er.
Stóru línubátarnir tveir í Grindavík, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa verið á veiðum ansi djúpt úti frá Grindavík að eltast við keilu og löngu og gekk nokkuð vel hjá þeim í júní. Var Páll Jónsson GK með 384 tonn í 4 róðrum og mest 109 tonn og Sighvatur GK var með 340 tonn í 4 og mest 103 tonn.







