Pistlar

Af rækju fyrir norðan og fáum línubátum
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
fimmtudaginn 2. júlí 2026 kl. 06:19

Af rækju fyrir norðan og fáum línubátum

Núna er júnímánuður kominn á enda og þegar ég skrifa þennan pistil er ég staddur á Akureyri. Sumarblíða hérna fyrir norðan og fyrir norðan eru tvö skip frá Nesfiski búin að vera á rækjuveiðum og hafa verið að landa rækju á Siglufirði.

Pálína Þórunn GK hefur landað 73 tonnum í tveimur löndunum og af þeim afla er rækja um 37 tonn. Sóley Sigurjóns GK hefur landað 153 tonnum í 3 löndunum og þar af er rækja 68 tonn. Báðir þessir togarar eru ekki með skiljur og því er töluvert af fiski sem kemur líka.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Á Skagaströnd er einn bátur frá Stakkavík, Gulltoppur EA, en hann hefur reyndar ekki verið að róa mikið núna í júní, aðeins farið í fimm róðra og landað 9,8 tonnum og mest 2,8 tonnum. Gulltoppur GK er eini báturinn sem Stakkavík gerir út sem rær með bala og er beitt á bátinn í Sandgerði. Í júní voru reyndar aðeins átta bátar á öllu landinu sem réru á línu og með bala, og þar af voru þrír bátar á Borgarfirði eystri.

Ef við færum okkur suður aftur þá eru stóru línubátarnir tveir búnir að vera á veiðum út við Reykjanes, ansi djúpt úti og eru að eltast við löngu og keilu. Páll Jónsson GK er kominn með 295 tonn í þremur löndunum og mest 109 tonn. Sighvatur GK er með 267 tonn líka í þremur löndunum og mest 103 tonn.

Enginn annar línubátur er á veiðum frá Suðurnesjunum. Aftur á móti eru nokkrir línubátar frá Suðurnesjunum fyrir austan og þar er til dæmis Fjölnir GK sem hefur gengið ansi vel, og er kominn með 191 tonn í 17 róðrum og mest 16 tonn í einni löndun. Hann hefur verið að landa í Neskaupstað. Einhamarsbátarnir eru líka fyrir austan en þeir hafa lítið róið í júní. Auður Vésteins GK með 28 tonn í 4 róðrum, Gísli Súrsson GK 29 tonn í 4 róðrum, báðir á Stöðvarfirði. Vésteinn GK hefur engum afla landað síðan í lok apríl á þessu ári.

Nokkuð góð veiði hefur verið hjá bátunum sem hafa róið með dragnót í júní. Sigurfari GK byrjaði mánuðinn á veiðum út með suðurströndinni og landaði fyrst í Þorlákshöfn og kom síðan til Sandgerðis. Sigurfari GK er kominn með 108 tonn í 3 róðrum en núna er báturinn kominn upp í slipp í Njarðvík. Margrét GK fór líka í stuttan slipp í Njarðvík en er kominn á flot aftur og hefur landað 23 tonnum í 3 róðrum. Aðalbjörg RE er með 169 tonn í 14 róðrum og mest 17 tonn. Benni Sæm GK 122 tonn í 14 róðrum og mest 13 tonn og Siggi Bjarna GK 91 tonn í 7 og mest 31 tonn.

Þessum 31 tonna afla hjá Sigga Bjarna GK var landað í Þorlákshöfn en báturinn var við veiðar meðfram suðurströndinni á svipuðum slóðum og Sigurfari GK var á veiðum. Eftir þessa löndun kom báturinn til Sandgerðis.

Enginn bátur var á netum nema Emma Rós KE sem var á ufsaveiðum í Röstinni og landaði í Sandgerði. Síðan er Grímsi GK kominn á ufsaveiðar á Selvogsbanka en hann hefur ekki landað neinum afla þegar þessi pistill er skrifaður en hefur verið inn til Grindavíkur. Líklega er Grímsi GK að veiða í sig og líklega landar hann þá í Njarðvík.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar