K Steinarsson 16-31.júní
K Steinarsson 16-31.júní

Fréttir

Líf í lundi í Sólbrekkuskógi - Sjáið myndirnar
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
miðvikudaginn 1. júlí 2026 kl. 09:58

Líf í lundi í Sólbrekkuskógi - Sjáið myndirnar

Nýtt og glæsilegt skógarskýli opnað á 70 ára afmæli Sólbrekkuskógar

Það ríkti mikil hátíðarstemning í Sólbrekkuskógi á dögunum þegar þess var minnst að 70 ár eru liðin frá því að skógrækt hófst á svæðinu. Í tilefni af þessum merka áfanga var nýtt og glæsilegt skógarskýli, sem fengið hefur nafnið Brekkusel, formlega tekið í notkun.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, afhjúpaði nafn nýju byggingarinnar í fallegu sumarveðri, en verkefninu er ætlað að auka gildi svæðisins til útiveru, náttúruupplifunar og náms. Fjöldi fólks lagði leið sína í skóginn og var mikið líf í lundi; börn gróðursettu trjáplöntur á svæðinu, gæddu sér á grilluðum pylsum og fengu að grilla sykurpúða yfir opnum eldi við mikla hrifningu.

Byggt úr íslenskum efnivið

Forsaga Brekkusels teygir sig til ársins 2019 þegar Skógræktarfélag Íslands sótti um styrk til hönnunar á skógarskýli fyrir einn af 17 Opnum skógum landsins. Sólbrekkuskógur, sem hefur verið hluti af því verkefni frá 2005, varð fyrir valinu eftir samkomulag við Skógræktarfélag Suðurnesja og Reykjanesbæ.

Arkís arkitektar hönnuðu húsið og Efla sá um burðarþolsteikningar eftir að 4,7 milljóna króna hönnunarstyrkur fékkst árið 2020. Vorið 2021 fékkst svo tæplega 44 milljóna króna framhaldsstyrkur úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til sjálfrar byggingarinnar. Húsið er búið eldstæði, ytri kennsluaðstöðu og þurrklósetti.

Húsið á sér einstaka sögu þar sem það er að öllu leyti byggt úr íslenskum efnivið. Skógræktarfélag Reykjavíkur og Skógræktarfélag Árnessýslu lögðu hönd á plóg, felldu tré í sínum eigin skógum og unnu allt timbur, bæði burðarviði og klæðningu, sem fór í bygginguna.

Seinkaði vegna jarðelda á Reykjanesi

Framkvæmdir hófust af krafti haustið 2021 þar sem fjöldi heimamanna og verktaka kom að máli. Jarðvinnu lauk fljótt en snemma árs 2022 urðu verktakaskipti þegar Húsagerðin í Reykjanesbæ tók við verkinu. Undir lok þess árs var burðargrindin risin.

Verkið gekk hins vegar hægt á árunum 2023 og 2024 vegna mikilla verkstoppa sem tengdust eldvirkni og jarðeldum í nágrenni Grindavíkur, en Grindavíkurvegi var ítrekað lokað og vinnusvæðið því algjörlega lokað á tímabili. Haustið 2025 tókst Húsagerðinni loks að ljúka allri vinnu.

Reykjanesbær tekur við keflinu

Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, flutti ávarp við opnunina og rakti þessa ströngu en farsælu byggingarsögu. Hann benti á að það hafi aldrei verið ætlunin að landssamtökin ættu húsið. Með samkomulagi sem gert var sumarið 2025 hefur Reykjanesbær nú tekið alfarið við skýlinu til eignar og fullra umráða. Bærinn mun sjá um alla umhirðu, eftirlit og salernisaðstöðu á svæðinu til frambúðar.

„Það er von okkar og trú að þetta glæsilega skógaskýli muni verða til heilla og nýtast öllum íbúum Reykjanesbæjar og öðrum gestum sem sækja Sólbrekkuskóg heim,“ sagði Jónatan í ávarpi sínu og þakkaði öllum þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg við þessa vandasömu framkvæmd.

Með tilkomu Brekkusels hefur Sólbrekkuskógur fengið glæsilega innviði sem eiga án efa eftir að laða enn fleiri fjölskyldur, skólahópa og útivistarfólk á svæðið á komandi árum.

Í Sólbrekkuskógi er í dag unnið að grisjun en hæstu tré skógarins eru komin yfir 20 metra. Í skóginum á einnig að leggja nýja göngustíga sem mynda hringleið og verða 4-5 km þegar þeir verða fullbúnir. Í nánasta umhverfi skógarins eru svæði fyrir vélhjólaíþróttir, auk svæðis fyrir flugmódel og fjarstýrða bíla. Þá er Seltjörnin ávallt vinsæl til útivistar.

Sólbrekkuskógur 70 ára 2026

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar