K Steinarsson 16-31.júní
K Steinarsson 16-31.júní

Fréttir

Metár hjá Minningarsjóði Ölla: Ný stjórn tekur við
Þriðjudagur 30. júní 2026 kl. 09:33

Metár hjá Minningarsjóði Ölla: Ný stjórn tekur við

Árið 2025 var enn á ný metár í starfsemi Minningarsjóðs Ölla, en metfjöldi styrkja var veittur til barna sem á þurfa að halda. Samhliða þessum tímamótum hafa verulegar breytingar átt sér stað á stjórn sjóðsins.

Starfsemi sjóðsins fór vaxandi á síðasta ári og munaði þar mest um dregna aukningu í styrkveitingum:

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
  • Styrkir árið 2025: 101 styrkur að heildarupphæð 8.126.906 kr.

  • Styrkir árið 2024: 71 styrkur að heildarupphæð rétt tæplega 5,2 milljónum kr.

Breytingar á stjórn

Á aðalfundi sjóðsins, sem haldinn var þann 26. maí sl., var ný stjórn kjörin.

Margrét Sanders var kjörin nýr formaður stjórnar. Þá gengu þau Hlynur Bæringsson, körfuboltamaður, og Særún Lúðvíksdóttir, móðir Ölla heitins og stofnandi sjóðsins, inn í stjórnina.

Þau taka sæti þeirra Ólafs Stefánssonar og Höllu Svanhvítar Heimisdóttur, sem láta nú af störfum. Minningarsjóður Ölla færir þeim Ólafi og Höllu innilegar þakkir fyrir ómetanlegt starf í þágu sjóðsins allt frá stofnun hans árið 2013 og óskar þeim velfarnaðar.

María Rut Reynisdóttir mun áfram gegna starfi framkvæmdastjóra sjóðsins.

Framundan

Verkefni sjóðsins halda áfram af krafti. Framundan er áheitasöfnun í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, önnur fjármögnun sjóðsins og áframhaldandi starf við að úthluta styrkjum til barna sem á þurfa að halda.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar