FSRE leitar að húsnæði fyrir brottfararstöð á Suðurnesjum
Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) hefur, fyrir hönd ríkissjóðs, auglýst í dag eftir mögulegu húsnæði á Suðurnesjum undir nýja brottfararstöð. Um er að ræða markaðskönnun þar sem leitað er að bæði tímabundnu húsnæði og langtímahúsnæði sem getur hýst allt að 30 einstaklinga ásamt starfsfólki. Gerð er skýlaus krafa um að staðsetningin sé á Suðurnesjum og að húsnæðið sé ekki í nálægð við íbúðarbyggð.
Áætluð húsrýmisþörf er á bilinu 750 til 1.200 fermetrar en tekið er fram að allar tillögur verði skoðaðar. Gert er ráð fyrir 15 til 30 svefnherbergjum með snyrtingu og sturtu eða aðgengi að sameiginlegri aðstöðu. Þá þarf húsnæðið að rúma þvottahús, matsal og félagsrými, auk viðtalsrýma og skrifstofa fyrir starfsfólk. Einnig er gerð krafa um gott, afgirt útisvæði eða möguleika á að útbúa slíkt.
Hraða þarf ferlinu þar sem lögin sem um ræðir taka gildi undir lok ársins. Tímabundna húsnæðið þarf því að vera tilbúið til afhendingar fyrir 1. desember næstkomandi. Með því á að fá ákveðna reynslu af starfseminni og hversu mikil þörfin verður. Æskilegt er að langtímahúsnæðið verði tilbúið eigi síðar en 30. september á næsta ári, en FSRE útilokar ekki að tímabundna húsnæðið geti nýst sem framtíðarhúsnæði.
Við mat á hagkvæmni tillagna verður horft til leiguverðs, stærðar, skipulags, öryggis, staðsetningar og afhendingartíma. Að könnun lokinni verður ákveðið hvort samið verði við tiltekinn aðila eða hvort farið verði í annað leiguferli.
Áhugasamir aðilar hafa frest til miðvikudagsins 5. ágúst næstkomandi til að skila inn upplýsingum.









