Samstaða um uppbyggingu gervigrasvallar en tillaga minnihlutans felld
Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur fellt tillögu B-lista Framsóknar og óháðra um uppbyggingu knattspyrnuaðstöðu í sveitarfélaginu. Fulltrúar meirihluta S-lista og D-lista greiddu atkvæði gegn tillögunni en fulltrúi M-lista sat hjá við afgreiðslu málsins, sem vísað hafði verið til bæjarráðs frá síðasta fundi bæjarstjórnar.
Þrátt fyrir að tillagan hafi verið felld ríkir eining um málaflokkinn, en fulltrúar meirihluta Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks bókuðu að þeir óskuðu eftir góðu samstarfi allra bæjarfulltrúa þegar farið verður í þá vinnu að finna nýjum gervigrasvelli stað í Suðurnesjabæ.
Áréttaði meirihlutinn að til stæði að ganga eins hratt til verks og auðið er. Taldi meirihlutinn hins vegar mikilvægt að nýir bæjarfulltrúar fengju svigrúm til að kynna sér feril málsins, fyrirliggjandi gögn og forsendur áður en endanleg ákvörðun yrði tekin.









