Hopp-hjól væntanleg í Suðurnesjabæ í sumar
Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur samþykkt samhljóða að verða við ósk um að starfrækja Hopp rafhlaupahjólaleigu í sveitarfélaginu í sumar. Um er að ræða reynsluakstur og prufukeyrslu fyrir sumarið 2026.
Erindið kom upphaflega inn á borð ferða-, safna- og menningarráðs í lok maí, sem vísaði málinu áfram til bæjarráðs. Í kjölfar samþykktar bæjarráðs hefur starfandi bæjarstjóra verið falið að eiga samráð við forsvarsmenn Hopp um hvar stoppistöðvar hjólanna muni hljóta staðsetningu í bænum.









