Mikill viðbúnaður við Rósaselstjarnir
Mikill viðbúnaður er hjá viðbragðsaðilum við Rósaselstjarnir. Þar eru tvær sjúkrabifreiðar frá Brunavörnum Suðurnesja auk þriðja bíls frá brunavörnum. Þá eru þrír lögreglubílar á vettvangi.
Samkvæmt upplýsingum Víkurfrétta varð umferðarslys og er bifreið langt utan vegar. Nú er verið að vinna á vettvangi og nánari upplýsingar ekki að hafa. Tafir eru á umferð en auðvelt að komast hjáleiðir.







