Tuttugu og fjórir sækja um stöðu bæjarstjóra í Suðurnesjabæ
Umsóknarfrestur um stöðu bæjarstjóra Suðurnesjabæjar er nú runninn út. Alls bárust 26 umsóknir um embættið, en tveir umsækjendur drógu umsókn sína til baka. Eftir standa 24 umsækjendur sem koma úr ýmsum áttum úr atvinnulífinu, þar á meðal fyrrverandi sveitarstjórar, þingmenn, lögfræðingar og stjórnendur.
Hér að neðan má sjá lista yfir þá sem sýndu starfinu áhuga:
Listi yfir umsækjendur:
-
Agnar Júlíusson – Forstöðumaður
-
Alexandra Jóhannesdóttir – Fv. sveitar- og hafnarstjóri
-
Arna Hrönn Aradóttir – Verkefnastjóri og ráðgjafi
-
Aron Heiðar Steinsson – Deildarstjóri
-
Ásgeir Sveinsson – Verkefnastjóri
-
Ásmundur Friðriksson – Fv. alþingismaður
-
Birgir Albertsson Sanders – Blikksmiður
-
Einar Kristján Jónsson – Fv. sveitarstjóri
-
Gauti Magnússon – Viðskiptastjóri
-
Gísli Kr. Björnsson – Lögmaður
-
Gísli Rafn Ólafsson – Fv. framkvæmdastjóri
-
Hannes Lúðvíksson – Ritari
-
Hilmar Vilberg Gylfason – Lögfræðingur
-
Jóhann Friðrik Friðriksson – Ráðgjafi
-
Jón Ingi Hákonarson – Ráðgjafi
-
Kristinn Óskarsson – Stjórnendaþjálfari og ráðgjafi
-
Maríanna Hugrún Helgadóttir – Fv. framkvæmdastjóri
-
Ólafur Þór Ólafsson – Fv. sveitarstjóri
-
Pétur G. Markan – Fv. bæjarstjóri
-
Sigurður Jóhannesson – Sérfræðingur
-
Snorri Leo Gabríelsson – Þjónn
-
Súsanna Björg Fróðadóttir – Lögmaður
-
Syed Anisuddin – Öryggisvörður
-
Þorsteinn Þorsteinsson – Ritstjóri









