Fréttir

Eldeyjarsystur færðu HSS og Skjólinu kærkomna styrki
Stjórn Rebekkustúku nr. 18 Eldey afhendir slökunarvörur á HSS
Þriðjudagur 23. júní 2026 kl. 10:29

Eldeyjarsystur færðu HSS og Skjólinu kærkomna styrki

Í byrjun júní sl. afhentu Eldeyjarsystur í Rebekkustúku nr. 18 Eldey, innan Oddfellowreglunnar, tvo rausnarlega styrki til samfélagsverkefna í Reykjanesbæ. Það var stjórn stúkunnar sem afhenti styrkina fyrir hönd systranna.

Fyrst lá leiðin á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) þar sem færðar voru ýmsar slökunarvörur til nota fyrir íbúa á hjúkrunardeild stofnunarinnar. Því næst heimsótti stjórnin Skjólið, sem er frístundaúrræði fyrir börn og ungmenni með langvarandi stuðningsþarfir, og afhenti þar styrk sem ráðstafað verður í kaup á skynjunarvörum.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Í tilkynningu frá stúkunni færir stjórnin starfsfólki Skjólsins og hjúkrunardeildar HSS kærar þakkir fyrir góða kynningu á starfseminni og lýsir yfir von um að styrkirnir muni nýtast vel í því mikilvæga og góða starfi sem þar fer fram.

Fulltrúar Eldeyjarsystra færa Skjólinu styrk.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar