K Steinarsson 16-31.júní
K Steinarsson 16-31.júní

Fréttir

Lóð Njarðvíkurkirkju stækkuð fyrir framtíðarviðbyggingu
Stækkuð lóð er merkt með tölustafnum 1.
Þriðjudagur 23. júní 2026 kl. 10:17

Lóð Njarðvíkurkirkju stækkuð fyrir framtíðarviðbyggingu

Skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt umsókn sóknarnefndar Njarðvíkurkirkju um stækkun á lóð kirkjunnar til móts við Brekkustíg. Ákvörðunin var tekin á 391. fundi ráðsins þann 19. júní sl.

Áform sóknarnefndarinnar ganga út á að nýta svæðið undir framtíðar viðbyggingu við kirkjuna, sem meðal annars mun hýsa safnaðarheimili og starfsmannaaðstöðu.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Í bókun skipulagsráðs kemur fram að lóðarstækkunin sé samþykkt en hún mun verða sveitarfélaginu að kostnaðarlausu.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar