Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 3. júní 2026 kl. 10:04

Bæjarstjóraskipti í Reykjanesbæ

Vilhjálmur Árnason tók við sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar í morgun. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri síðustu tólf ára afhenti Vilhjálmi blóm og lykil að ráðhúsi Reykjanesbæjar. Viðstaddir voru starfsmenn Reykjanesbæjar í ráðhúsinu.

„Láttu hjartað ráða,“ sagði Kjartan Már við Vilhjálm þegar fréttamaður Víkurfrétta bað hann um að gefa nýjum bæjarstjóra eitt ráð. Vilhjálmur sagðist spenntur að taka við nýju starfi og það væri verðugt verkefni. Hann ætlaði að nota fyrsta daginn í starfinu m.a. til að hitta sviðsstjóra bæjarfélagsins. „Nú tekur pólitískt ráðinn bæjarstjóri við störfum en markmið hvers bæjarstjóra er þó alltaf að vinna sveitarfélaginu gagn,“ sagði Vilhjálmur.