Fréttir

Framkvæmdir standast áætlun en bæjarstjóri óttast framkvæmdastopp í haust
Leikskólinn Drekadalur.
Föstudagur 19. júní 2026 kl. 12:29

Framkvæmdir standast áætlun en bæjarstjóri óttast framkvæmdastopp í haust

Nýtt mælaborð yfir sjö stærstu framkvæmdir Reykjanesbæjar sýnir að öll verkefni eru innan fjárhagsáætlunar. Þrátt fyrir gleði minnihlutans á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar yfir þeim tíðindum lýsir nýr bæjarstjóri yfir þungum áhyggjum af því að framkvæmdirnar muni stoppa vegna fjárskorts í haust.

Mælaborðið tekur til framkvæmda við Myllubakkaskóla, Holtaskóla, Drekadal, leikskólann Velli, íþróttavallarhús Njarðvíkur, Hljómahöll og leikskólann Heiðarsel. Minnihlutinn fagnaði stöðunni og sagði mælaborðið sanna að fullyrðingar Sjálfstæðisflokksins í kosningabaráttunni um fjárhagslega framkvæmdaóreiðu hefðu verið innantómar.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri tók hins vegar dræmt í fagnaðarlætin og benti á að mælaborðið sýndi aðeins raunstöðu eftir fyrsta ársfjórðung. Hann fullyrðir að framkvæmdirnar hafi ekki verið fullfjármagnaðar út árið í upphaflegri fjárhagsáætlun fráfarandi meirihluta.

„Þær lifa yfirleitt bara í þrjá ársfjórðunga, sá fjórði hefur ekki verið fjármagnaður,“ sagði Vilhjálmur og bætti því við að það stefndi í að framkvæmdirnar myndu hreinlega stoppa í haust ef ekki yrði brugðist við. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, fulltrúi Framsóknar, mótmælti þessu og sagði framkvæmdirnar fullfjármagnaðar en að þær hefðu einfaldlega gengið hraðar og betur en áætlað var og því væri eðlilegt að sækja um viðbótarheimildir ef menn vildu gera enn meira.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar