Rétt skal vera rétt
Laun bæjarstjóra Reykjanesbæjar eru að lækka og nemur hagræðingin af bæjarstjóraskiptunum yfir fjórum milljónum króna á ári fyrir Reykjanesbæ.
Í einhverju undarlegu óðagoti hefur minnihlutinn í Reykjanesbæ ákveðið að halda því fram að laun bæjarstjóra hafi verið hækkuð og saka mig um að vera á ofurlaunum þrátt fyrir að laun mín fyrir bæjarstjórastörf séu lægri en hjá mínum ágæta forvera. Þegar rangfærslur af þessu tagi eru settar fram í opinberri umræðu er nauðsynlegt að leiðrétta þær og fara yfir staðreyndir málsins.
Laun fyrrverandi bæjarstjóra, Kjartans Más Kjartanssonar, voru 2.872.306 krónur á mánuði. Laun mín sem bæjarstjóra eru 2.630.942 krónur á mánuði.
Sem kjörinn fulltrúi fæ ég jafnframt 241.364 krónur á mánuði í laun fyrir það hlutverk. Þá greiðslu get ég ekki afþakkað. Heildargreiðslur til mín nema því sömu fjárhæð og laun fyrrverandi bæjarstjóra, en munurinn er sá að laun bæjarstjóraembættisins sjálfs hafa verið lækkuð um 241.364 krónur á mánuði.
Það þýðir að Reykjanesbær sparar tæplega 2,9 milljónir króna á ári vegna þessarar breytingar.
Þá hef ég einnig ákveðið að afþakka fundarþóknanir fyrir bæjarstjórnarfundi, en bæjarfulltrúar fá rúmlega 68 þúsund krónur fyrir hvern fund. Miðað við tvær fundarþóknanir á mánuði nemur sá sparnaður um 1,5 milljónum króna á ári.
Samtals nemur hagræðingin vegna bæjarstjóraskiptanna því um 4,4 milljónum króna á ári fyrir Reykjanesbæ. Það er því verið að minnka kostnað skattgreiðenda, ekki hækka.
Við höfum jafnframt ráðist í breytingar á nefndakerfinu sem munu skila hátt í 10 milljóna króna sparnaði á ári. Á fyrstu tveimur vikum nýs meirihluta hefur því þegar náðst fram hagræðing upp á á annan tug milljóna króna.
Eðlilega eru vinstriflokkarnir ekki sáttir við aukna hagræðingu í stjórnsýslunni en þessu lofuðum við kjósendum og þetta ætlum við að efna. Ekki veitir af þegar útgjöld bæjarins á fyrstu sex mánuðum ársins eru vel fram úr áætlunum, svo ekki sé minnst á það að fyrrverandi meirihluti gerði ekki ráð fyrir biðlaunum fyrrverandi bæjarstjóra til sex mánaða.
Þetta er ómerkilegur og rangur málflutningur frá fólki sem ætti að vita betur. Ef þau ætla að vera föst í röngum málflutningi og upplýsingaóreiðu þá er það þeirra forgangsröðun.
Við ætlum hins vegar að hagræða þar sem við getum, tala upp sveitarfélagið og efla grunnþjónustuna. Þau geta tekið þátt í því með okkur eða haldið áfram á sinni vegferð.
Við komum í Ráðhúsið með uppbrettar ermar og tilbúin að vinna í þágu bæjarbúa. Eins og við höfum sýnt á fyrstu tveimur vikunum þá ætlum við að láta verkin tala og látum ekki upplýsingaóreiðu á okkur fá.
Vilhjálmur Árnason,
Vilhjálmur Árnason,
bæjarstjóri.







