Íslenski fáninn og þjóðhátíðin
Nú þegar þjóðhátíðardagur Íslendinga gengur í garð hefur meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins í Reykjanesbæ ákveðið að gera íslenska fánanum hátt undir höfði með því að óska eftir því við allar stofnanir bæjarins að flagga íslenska fánanum.
Fáninn mun ekki aðeins blakta á þjóðhátíðardaginn sjálfan heldur verður honum haldið á lofti allan sólarhringinn út sumarið, eftir því sem fánalög heimila. Þá munu íslenskir fánar einnig prýða aðkomuleiðir að sveitarfélaginu við þjóðveginn.
Sumum kann að þykja þetta lítið mál eða jafnvel óþarfi. Ég lít öðruvísi á það. Íslenski fáninn hefur ólíka merkingu fyrir ólíkt fólk og í því felst einmitt styrkur hans.
Fyrir suma táknar hann sjálfstæði þjóðarinnar, baráttu og afrek fyrri kynslóða og trúna á að við getum ráðið eigin örlögum. Fyrir aðra er hann tákn lands þar sem jafnrétti, frelsi og fjölbreytileiki eru í hávegum höfð. Enn aðrir sjá í honum tengingu við einstaka náttúru landsins og þá sögu og menningu sem mótað hefur þjóðina. Hver sem merkingin er, eigum við þennan fána sameiginlega.
Við búum í sveitarfélagi sem er fyrsti viðkomustaður flestra þeirra ferðamanna sem sækja Ísland heim. Því er vel við hæfi að taka á móti þeim með sýnilegum hætti og minna um leið á það sem sameinar okkur sem þjóð. Auðvitað er það von okkar að þetta auki enn frekar líkurnar á því að ferðamenn kíki við í sveitarfélagið okkar og njóti þeirrar þjónustu sem atvinnulífið og sveitarfélagið hefur upp á að bjóða.
Þann 17. júní verður fjölbreytt og glæsileg dagskrá í boði fyrir bæjarbúa. Hátíðarhöldin hefjast með hátíðarguðþjónustu í Keflavíkurkirkju og að henni lokinni verður farin skrúðganga í Skrúðgarðinn í Keflavík. Þar fer fram fánahylling, setning hátíðarinnar, ávarp fjallkonunnar, ræða dagsins og flutningur Lofsöngsins. Að lokinni hátíðardagskrá tekur við fjölskylduvæn skemmtidagskrá fyrir börn og ungmenni sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Ég hvet alla til að taka þátt í hátíðarhöldunum, njóta dagsins og fagna því sem sameinar okkur sem íbúa sveitarfélagsins og sem Íslendinga.
Gunnlaugur Kárason
formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar









