K Steinarsson 1-15.júní
K Steinarsson 1-15.júní

Fréttir

Háaleitisskóli: Skólasamfélag sem vex saman
Mánudagur 15. júní 2026 kl. 10:38

Háaleitisskóli: Skólasamfélag sem vex saman

Háaleitisskóli á Ásbrú hefur á undanförnum misserum vakið verðskuldaða athygli fyrir öflugt, fjölbreytt og framsækið skólastarf. Skólinn hlaut Hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2025 fyrir framúrskarandi fjölmenningarlegt skólastarf, jákvæða skólamenningu og sterka samvinnu við foreldra. Í umsögn dómnefndar var sérstaklega horft til þess hvernig félagslíf er samþætt inn í kennslu, hvernig skólinn styður við vellíðan nemenda og hvernig tekið er á móti nýjum nemendum, meðal annars í móttökudeildinni Friðheimum. Í kjölfar verðlaunanna heimsótti forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, Háaleitisskóla þann 7. nóvember sl. Þar fékk hún að kynnast starfi skólans, hitta nemendur og starfsfólk og sjá fjölbreytt verkefni sem unnin höfðu verið á önninni. Heimsóknin var skólasamfélaginu mikil hvatning og staðfesting á því góða starfi sem þar fer fram á hverjum degi.

Í Háaleitisskóla er fjölbreytileikinn styrkur. Um 30 tungumál eru töluð innan skólans og rík áhersla er lögð á fjöltyngi, inngildingu nemenda, jákvætt foreldrasamstarf og vellíðan allra sem koma að skólastarfinu, starfsmanna og nemenda. Í Friðheimum fá nemendur með erlendan bakgrunn markvissan stuðning í íslensku en taka jafnframt þátt í bekkjarstarfi frá upphafi. Þannig er lögð áhersla á að allir nemendur upplifi sig velkomna og virka þátttakendur í skólasamfélaginu.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Árangur nemenda hefur einnig verið eftirtektarverður. Liðið Oak, nemenda úr 10. bekk hlaut annað sæti í keppninni Greindu betur hjá Hagstofunni með verkefni um ættleiðingar. Með árangrinum tryggðu þær sér þátttökurétt í Evrópsku tölfræðikeppninni. Þá komust tveir nemendur úr 5. bekk í lokahóp Nýsköpunarkeppni grunnskólanna með hugmyndina Hitakút, mjúkan bangsa sem bæði yljar höndum og getur haldið á síma eða spjaldtölvu. Hugmyndin sameinar notagildi, hönnun og sköpun á einstaklega skemmtilegan hátt. Sköpunarkraftur nemenda birtist víða. Nemendur úr 8. bekk hlutu viðurkenningu fyrir glæsilegt veggspjald í tengslum við Viku 6, þar sem þær sýndu frumkvæði, metnað og góða samvinnu. Þá var texti eftir nemandi  úr 8. bekk valinn til birtingar á mjólkurfernum MS í tengslum við Fernaflug. Um 1.200 textar bárust í keppnina og aðeins 48 voru valdir til birtingar. Það er því mikill heiður, bæði fyrir nemandann sem og Háaleitisskóla.

Kennarar skólans hafa einnig fengið viðurkenningu fyrir fagmennsku og nýsköpun. Drífa Hjördís Thorstensen, kennari við Háaleitisskóla, hlaut VILJA Hvatningarverðlaun kennara 2026 fyrir framúrskarandi framlag til nýsköpunar í skólastarfi. Verðlaunin eru ekki aðeins viðurkenning á hennar starfi, heldur einnig á því umhverfi sem skólinn hefur skapað, þar sem hugmyndir, forvitni og skapandi hugsun fá að blómstra.

Læsi skipar stóran sess í skólastarfinu. Háaleitisskóli hefur náð frábærum árangri í sumarlestrarkeppni og sigrað þrjú ár í röð. Sumarið 2025 lásu nemendur samtals í 176 klukkustundir og tryggðu skólanum fyrsta sætið. Skólinn fékk einnig styrk úr Nýsköpunar- og þróunarsjóði menntasviðs fyrir verkefnið Sumarlestur, sem miðar að því að viðhalda lestrarfærni nemenda yfir sumarfríið og efla lestraráhuga þeirra.

Félagslíf nemenda er lifandi og markvisst. Nemendaráð tekur virkan þátt í að skipuleggja viðburði og koma sjónarmiðum nemenda á framfæri. Félagsmiðstöðin Brúin er opin í frímínútum og hádegi sem styður við jákvæð samskipti og þátttöku nemenda. Í apríl fór hópur nemenda í Erasmus+ ferð til Florina í Grikklandi, þar sem unnið var að verkefninu Together for wellbeing með grískum nemendum. Slík verkefni víkka sjóndeildarhring nemenda og efla bæði sjálfstraust og samskiptafærni.

Innan skólans er jafnframt unnið markvisst að vellíðan, réttindum barna og inngildingu. Verkefnið „Við vöxum saman“, sem hlaut styrk úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla, hefur eflt skilning starfsfólks á því hvernig inngilding birtist í daglegu skólastarfi. Þar er horft til þess hvernig nemendur eru boðnir velkomnir, hvernig þeir taka þátt, fá stuðning og upplifa að þeir tilheyri hópnum.

Háaleitisskóli hefur einnig lagt áherslu á faglegan stuðning við starfsfólk. Nýir kennarar fá leiðsögn í starfi og skólinn hefur leiðsagnarkennara í 75% starfi við leiðsögn. Slíkur stuðningur eykur öryggi, starfsánægju og fagmennsku kennara, sem skilar sér beint til nemenda. Þá hefur skólinn nýtt þekkingu atferlisfræðings til að styðja við nemendur, styrkja jákvæða hegðun og skapa skýrari leiðir í skólastarfinu.

Háaleitisskóli er skóli þar sem fjölbreytileiki, vellíðan, sköpun og fagmennska fara saman. Árangurinn sem skólinn, starfsfólk hans og nemendur hafa náð sýnir hvað gerist þegar skólasamfélag vinnur saman af metnaði, virðingu og trú á getu hvers barns. Þar er ekki aðeins verið að byggja upp öflugt nám, heldur sterkt samfélag þar sem allir fá tækifæri til að vaxa.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar