Ný og litrík Scania á göturnar hjá Bus4u
Hópbílafyrirtækið Bus4u Iceland, sem starfrækir öfluga hópferðaþjónustu í Reykjanesbæ, setti í dag nýja og afar sérstaka rútu á götuna. Um er að ræða glæsilega Scania-bifreið sem skartar regnbogalitum og ber með sér skýr skilaboð um fjölbreytileika og samstöðu.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er nýja rútan hönnuð á einstaklega litríkan og áberandi hátt. Að sögn forsvarsmanna Bus4u Iceland er bílnum ætlað að vera ákveðið tákn í flórunni á íslenskum vegum.
„Hjá Bus4u Iceland trúum við því að fjölbreytileikinn geri lífið ríkara. Við komum úr mismunandi áttum, höfum ólíkar skoðanir og veljum mismunandi leiðir í lífinu,“ segir í færslu frá fyrirtækinu í tilefni af fyrstu ferð bílsins.
„Samt eigum við öll eitthvað sameiginlegt – við leitum að virðingu, öryggi, gleði og góðri upplifun á leiðinni. Þess vegna vildum við setja þessa sérstöku rútu á götuna. Hún er tákn um það að hjá Bus4u eru allir velkomnir.“
Undir kjörorðunum „Ólíkar leiðir. Sami áfangastaður“ vildi fyrirtækið koma á framfæri þakklæti til farþega sinna, starfsfólks, samstarfsaðila og vina fyrir að vera hluti af ferðalaginu og minnir á að ávallt séu allir velkomnir um borð.










