Íbúar á Ásbrú láta í sér heyra: Hagsmunasamtök endurvakin og viðamikil könnun í gangi
„Viðbrögðin hafa verið gríðarlega mikil og á aðeins rúmri viku hafa 131 íbúi svarað könnuninni og samtökin telja þegar 162 félagsmenn,“ segir Katrín Sandholt, stofnandi Hagsmunasamtaka íbúa á Ásbrú.
Samtökin hafa verið endurvakin í þeim tilgangi að vinna með öðrum hagsmunaraðilum að framtíðaruppbyggingu og stefnu Ásbrúar í takt við þarfir og vilja þeirra sem þar búa. Með faglegri nálgun að framtíðartillögum verður stefnt að því að bæta ímynd hverfisins, efla umhverfismál og tryggja mun betri tengingu við Reykjanesbæ.
Strætósamgöngur á sunnudögum og skólamál brenna á íbúum
Samtökin standa nú fyrir viðamikilli íbúakönnun þar sem leitað er eftir svörum um helstu áskoranir í hverfinu. Á meðal þess sem brennur á íbúum eru skólamál, þjónusta, almenn uppbygging og ekki síst strætósamgöngur en eins og staðan er núna eru engar strætóferðir á sunnudögum á Ásbrú og síðasta ferð á kvöldin er klukkan 19:00.
Könnunin er keyrð á bæði íslensku og ensku, enda er stór hluti íbúa á Ásbrú af erlendum uppruna og fær sá hópur sjaldan tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Þegar hafa 84 svarað á íslensku og 47 á ensku.
Niðurstöður könnunarinnar verða dregnar saman og lagðar fyrir nýja bæjarstjórn Reykjanesbæjar með það að markmiði að knýja á um úrbætur og eiga í góðu samstarfi við bæinn um uppbyggingu svæðisins.
Allir í póstnúmeri 262 velkomnir – Skráning ókeypis
Hagsmunasamtökin minna á að allir þeir sem hafa skráð lögheimili í hverfinu, þ.e. í póstnúmeri 262, geta gerst félagsmenn. Enginn sérstakur félagskostnaður fylgir því að vera í samtökunum og er skráning algjörlega gjaldfrjáls. Ekki er haldin hefðbundin félagaskrá en haldið er úti netfangalista yfir félagsmönnum til að senda út mikilvægar fréttir og tilkynningar.
Könnunin er opin til og með 17. júní næstkomandi og eru íbúar á Ásbrú sem ekki hafa þegar tekið þátt hvattir til að láta rödd sína heyrast.
Hér er hægt að skrá sig í félagið og taka þátt í könnuninni: Smella hér á skráningarform
Íbúar geta einnig fylgst með og tekið þátt í umræðum í gegnum opinberan Facebook-hóp samtakanna.









