Blái herinn og sendiráð hreinsuðu tæpt tonn af rusli við Brimketil
Brimketilssvæðið á Reykjanesi er nú tæpum 700 kílóum fátækara af sjóreknu rusli eftir öflugt hreinsunarstarf Bláa hersins í dag. Tómasi J. Knútssyni tókst að smala saman um 50 manna vaskri sveit sjálfboðaliða til að fegra þennan vinsæla ferðamannastað á Suðurnesjum.
Hópurinn sem mætti til leiks var skemmtilega alþjóðlegur, en til liðs við Tómas kom starfsfólk frá skrifstofu Evrópusambandsins (ESB) á Íslandi, sjálfboðaliðar frá SEEDS Iceland og fulltrúar frá nokkrum sendiráðum hér á landi.
Alls söfnuðust um 680 kíló af sjóreknu efni á svæðinu, sem nú fer allt í viðeigandi endurvinnslufarveg.
Að sögn Tómasar tókst dagurinn í alla staði frábærlega. Veðrið lék við hreinsunarfólkið á Suðurnesjunum í dag og voru allir þátttakendur gríðarlega sáttir með góðan og þarfan afrakstur.







