16 ára strákar sögðust hafa keypt sterkt áfengi í Vínbúðinni
– Bæjarbúar efins og heitar umræður á netinu
Heitar umræður hafa skapast á samfélagsmiðlum eftir að móðir 16 ára drengs steig fram og fullyrti að sonur hennar og félagar hans hefðu fengið afgreitt sterkt áfengi í Vínbúðinni í Reykjanesbæ. Málið endaði með ofurölvun og afskiptum lögreglu, en bæjarbúar telja margir hverjir líklegra að krakkarnir séu að hlífa þeim sem keypti fyrir þá.
Móðirin lýsti yfir mikilli reiði og sárindum í garð starfsfólks Vínbúðarinnar og benti á að þetta hefði aldrei átt að geta gerst ef unnið væri eftir lögum og beðið um skilríki. Hún sagði jafnframt að lögreglan væri með málið til rannsóknar og ætlaði að skoða upptökur úr öryggismyndavélum verslunarinnar.
„Ég er þrítugur og alltaf beðinn um skilríki“
Færslan hefur vakið mikla athygli og fjölmörg viðbrögð heimamanna en stór hluti þeirra sem tjá sig Reykjanesbæ og dæmin sem fólk nefnir sýna fram á annað en slaka afgreiðslu:
Bragi: „Hvernig bara getur þetta gerst? Ég er 30 ára og alltaf beðinn um skilríki.“
Margrét: „Ég er alltaf spurð um skilríki, 33 ára gömul.“
Pétur: „Ég fór fertugur að versla í þessari vínbúð í hitteðfyrra og var spurður um skilríki.“
Kristín: Sagði frá því að 18 ára dóttur sinni hefði hreinlega verið vísað út úr búðinni í vetur, þrátt fyrir að vera aðeins í fylgd með móður sinni og ekki að versla sjálf.
Aðrir bentu á að reglurnar væru svo strangar að fullorðnu fólki í fylgd með unglingum hefði ítrekað verið neitað um afgreiðslu ef grunur lék á að áfengið væri ætlað þeim yngri.
Eru strákarnir að segja satt?
Vegna þess hve eftirlitið þykir jafnan strangt í versluninni skjóta margir bæjarbúar á að strákarnir séu einfaldlega ekki að segja satt til að vernda þann sem útvegaði áfengið.
„Hefur drengjunum ekki dottið í hug að segja ósatt um afgreiðsluna og þá að einhver sem hefur aldur til hafi verslað fyrir þá og þeir vilji ekki segja frá því?“ spyr Halldór og fleiri taka í sama streng. Bent er á að auðvelt sé fyrir lögreglu og yfirmenn verslunarinnar að fletta upp bankafærslum og myndavélum til að komast að hinu sanna.
Ein ábending kom þó úr öðru horni en þar sagði áhyggjufullur faðir: „Strákurinn minn fær aldrei afgreitt í Vínbúðinni en það er ekkert mál hjá þessum sjálfstæðu sprúttsölum,“ og vísar þar til ólöglegrar áfengis- og vímuefnasölumennsku á samfélagsmiðlum sem herjar á ungmenni.
Hvort sem myndavélar Vínbúðarinnar munu sýna fram á mannleg mistök við kassann eða að einhver eldri hafi gerst sekur um að „kaupa út“ fyrir ólögráða börn, er ljóst að málið hefur vakið samfélagið í Reykjanesbæ til umhugsunar um mikilvægi þess að halda vökulum augum með ungu fólki.









