Bæjarráð hafnar öllum tilboðum í lóðarfrágang Myllubakkaskóla
Öllum tilboðum sem bárust í lóðarfrágang við Myllubakkaskóla hefur verið hafnað þar sem þau voru öll yfir kostnaðaráætlun. Þetta var ákveðið á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar sem fram fór í morgun, fimmtudaginn 11. júní.
Bæjarráð hefur falið Hreini Ágúst Kristinssyni, deildarstjóra eignaumsýslu, að vinna málið áfram.









