K Steinarsson 1-15.júní
K Steinarsson 1-15.júní

Fréttir

Deiliskipulag Gauksstaða samþykkt
Miðvikudagur 10. júní 2026 kl. 09:26

Deiliskipulag Gauksstaða samþykkt

Nýkjörin bæjarstjórn Suðurnesjabæjar hefur samþykkt deiliskipulagstillögu og umhverfismat fyrir fyrirhugaða ferðaþjónustu á Gauksstöðum í Garði. Ákvörðunin var tekin eftir pólitískar skylmingar, fundarhlé og harðar bókanir á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar, þar sem tillögu Miðflokksins (M-lista) um frestun var hafnað.

Málið á sér nokkra sögu en um er að ræða endurtekna málsmeðferð eftir að Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi fyrri samþykkt bæjarráðs úr gildi í ársbyrjun vegna annmarka á umhverfismati. Nú hefur meirihluti S, D og B-lista keyrt skipulagið í gegn og vísað því áfram til Skipulagsstofnunar, þrátt fyrir að tæplega 400 íbúar hafi skrifað undir mótmæli.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
M-listinn krafðist frestunar á fyrsta fundi

Á fundinum lögðu fulltrúar M-lista til að ákvörðun yrði frestað. Þeir bentu á að það gæti vart talist málinu til framdráttar að jafn veigamikið og umdeilt mál væri lagt fram til staðfestingar á allra fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar, áður en nýtt fólk í bæjarstjórn og framkvæmda- og skipulagsráði hefði fengið fullnægjandi kynningu. Eins og staðan væri hefði aðeins hluti bæjarfulltrúa fengið að kynna sér gögnin til fulls.

Eftir að tillagan var lögð fram tók forseti bæjarstjórnar rúmlega tuttugu mínútna fundarhlé til að ráða ráðum sínum. Að því loknu var tillaga M-listans felld, þar sem fulltrúar S, D og B-lista greiddu atkvæði á móti henni.

Meirihlutinn telur málið fullrannsakað

Í bókun frá fulltrúum S- og D-lista kom fram að nýi meirihlutinn hefði nýtt síðustu daga vel til að kynna sér málsmeðferðina, lesa umsagnir, rýna í gögn og ræða við embættismenn sveitarfélagsins – rétt eins og öllum kjörnum fulltrúum hefði staðið til boða.

Þeir telja að málið hafi fengið afar ítarlega og trausta meðferð í stjórnsýslunni og á þeim grundvelli hafi ákvörðun verið tekin. Skipulagið fer nú til formlegrar yfirferðar hjá Skipulagsstofnun og verða næstu skref vörðuð í framhaldi af því.

„Hvaða hagsmunir ráða för?“

Fulltrúar M-lista létu þetta ekki liggja á milli hluta og bókuðu harða gagnrýni á þetta flýtisverk, eins og þeir telja það vera. Í bókun þeirra kom fram að 46 neikvæðar umsagnir og undirskriftalisti með 368 nöfnum sýndu svart á hvítu að samráð við íbúa hefði verið fótum troðið. Undirskriftirnar munu samsvara um 8,8% allra íbúa Suðurnesjabæjar, eða um 12% þeirra sem hafa kosningarétt í sveitarfélaginu.

Spurði M-listinn beint: „Hvaða hagsmunir eru það sem ráða för í þessu máli?“

Flokkurinn áréttaði að hann væri fylgjandi uppbyggingu almennt en á þessum stað þyrfti að staldra við. Umsagnir Vegagerðarinnar um nauðsynlegar sjóvarnir og ábendingar Veðurstofu Íslands um hækkandi sjávarstöðu og flóðahættu væru þess eðlis að það væri beinlínis óskynsamlegt að byggja á svæðinu án frekara mats. Þá sögðu þeir athugasemdir og áhyggjur íbúa í Skipulagsgáttinni vera „átakanlegan“ lestur sem bæjarstjórn bæri skylda til að taka alvarlega.

Skipulagið var samþykkt og staðfest með atkvæðum S, D og B-lista, en fulltrúar M-lista greiddu atkvæði gegn því. Málið sendist nú samkvæmt skipulagslögum til Skipulagsstofnunar til lokaúttektar. Miðað við þá hörku og þá miklu andstöðu sem ríkir íbúa á svæðinu má hins vegar fastlega búast við því að deilunni sé hvergi nærri lokið.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar