Fimmtudagur 21. maí 2026 kl. 18:50

Margrét nýr forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar

„Ætlum ekki að gera fleiri samninga við ríkið um hælisleitendur“

Margrét Þórarinsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, tekur við embætti forseta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í nýja meirihlutanum. Hún segir nýjan málefnasamning endurspegla skýrt ákall um breytingar og lofar því að nýja stjórnin muni sýna meiri hörku gagnvart ríkinu.

Margrét á að baki fjölbreytta sögu í bæjarpólitíkinni í Reykjanesbæ. Hún hóf ferilinn í Miðflokknum en vegna óánægju með innanbúðarmál þar klauf hún sig frá flokknum og stofnaði framboðið Umbót, sem hún sat fyrir á kjörtímabilinu sem er að líða. Fyrir þessar kosningar gekk hún til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.

„Við erum bara búin að vinna rosalega vel saman í minnihluta og áherslurnar hjá okkur hafa legið saman. Það lá svona beinast við,“ segir Margrét um flutninginn yfir í Sjálfstæðisflokkinn.

Vilja sækja meira fé til ríkisins og breyta stefnunni í flóttamannamálum

Margrét lofar nýjan bæjarstjóra, Vilhjálm Árnason, og segir tengsl hans inn á Alþingi og í ráðuneytin vera mikinn happafeng fyrir sveitarfélagið. Þau tengsl muni nýtast til að sækja fjármagn sem bænum ber, en jafnframt standi til að sýna meira stolt í samstarfinu við ríkisvaldið.

„Við þurfum bara að vera dugleg að sækja fé frá ríkinu og standa í lappirnar líka gagnvart ríkinu,“ segir Margrét og nefnir málaflokk sem hún hefur lengi barist fyrir. „Eins og kemur fram í málefnasamningnum þá ætlum við ekki að gera fleiri samninga við ríkið hvað varðar hælisleitendur og flóttafólk. Við munum standa í lappirnar þar.“

Auk þess nefnir hún að nýi meirihlutinn ætli að snúa við blaðinu í húsnæðismálum, en Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið mjög ósammála fráfarandi meirihluta um þau mál í allan vetur.

Tikkað í boxin á fyrstu 100 dögunum

Aðspurð um hvað hún vilji sjá gerast fljótt nefnir Margrét sérstakt 100 daga plan nýja meirihlutans. Hún segir samstarfið í nýja hópnum hafa smellt strax og allir hafi komið að borðinu við ritun málefnasamningsins.

„Það voru allir sem komu að borðinu, það var enginn einn, tveir eða þrír. Við ætlum að standa við þessa 100 daga og okkur hlakkar til að byrja að tikka í boxin.“

Margrét, sem starfað hefur sem flugfreyja, segist spennt að taka við keflinu og stýra fundum bæjarstjórnar á nýjum vettvangi.

„Það verður nú ekki amalegt. Ég er nú svo sem vön að stýra hópum um borð í flugvélum, þannig að ég hlakka til en aðeins á öðrum vettvangi. Ég þakka bara fyrir traustið og þann heiður að fá að verða forseti bæjarstjórnar.“