Kvennakór
Kvennakór

Viðskipti

Mikil stemmning á birgjadegi Ísland Duty Free
Miðvikudagur 10. júní 2026 kl. 14:13

Mikil stemmning á birgjadegi Ísland Duty Free

Fjöldi íslenskra birgja kynnti vörur sínar fyrir starfsfólki Ísland Duty Free á birgjadegi Ísland Duty Free. Markmiðið með birgjadeginum er að starfsfólk Ísland Duty Free þekki þær vörur sem seldar eru í verslunum til að bæta þjónustu við viðskiptavini.

Fjöldi innlendra birgja tók þátt í viðburðinum og skapaðist skemmtileg stemning.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

„Við leggjum mikið upp úr því að gera íslenskum vörum hátt undir höfði í verslunum okkar,“ segir Liam Grundy, framkvæmdastjóri Ísland Duty Free. Hann segir að breytingar á verslunum miði meðal annars að því að gera íslenskum vörum hátt undir höfði og gefa þeim gott rými sem höfði til erlendra og innlendra ferðamanna.

„Við höfum lagt mikinn metnað í að gera íslenska svæðið í búðunum aðlaðandi og áberandi með vísan í íslenska náttúru og sérkenni. Við viljum auka enn frekar framboð á íslenskum vörum ekki aðeins á Íslandi heldur þegar fram í sækir einnig í verslunum á flugvöllum erlendis. Við viljum líka að ferðalangar fái framúrskarandi þjónustu í verslunum og þess vegna eru svona birgjadagar, þar sem birgjar hafa tækifæri til að kynna vörur sínar fyrir starfsfólki, afar mikilvægir,“ segir Liam.
























Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar