Líndal tekur við Georg V. Hannah eftir 59 ára verslunarrekstur
Nýr kafli í verslunarrekstri á Hafnargötunni í Keflavík.
Úra- og skartgripaverslunin Líndal hefur opnað dyr sínar að Hafnargötu 49 í Keflavík. Verslunin er arftaki hinnar rótgrónu verslunar Georgs V. Hannah, en nýr eigandi er Helgi Líndal, nýútskrifaður gullsmiður. Hann tók við keflinu af Eggert Hannah gullsmið. Við tókum Helga tali á opnunardaginn til að ræða áskoranirnar, vöruúrvalið og framtíðina á Hafnargötunni.
Spennandi áskorun og 59 ára saga
Hvernig er að opna búð í Keflavík í dag?
„Það er bara spennandi, já, ég held ég geti ekki sagt neitt annað en það.“
Hvernig kom þetta til?
„Ég tók starfsnám hérna hjá honum Eggerti Hannah, sem tók við verslunarrekstrinum af foreldrum sínum árið 2017. Ég hóf námssamning hjá honum, byrjaði árið 2022 ef ég man rétt. Ég er búinn að vera hérna síðustu ár að hjálpa honum af og til og kláraði námssamninginn hér. Svo var kominn tími hjá honum að hætta og hann bauð mér að kaupa. Ég sá bara ekki annað í stöðunni en að segja já.“
Varstu þá að læra gullsmíði?
„Já, ég lærði gullsmíði hjá Eggerti og útskrifaðist úr Tækniskólanum fyrir rétt rúmu ári, um miðjan maí í fyrra.“
Þetta er svolítið mikil áskorun að taka við svona rótgróinni verslun?
„Já, þetta er mikið viðbrigði og einmitt áskorun. Þetta er 59 ára gömul verslun. Það verður vinna að halda þessu við en bara ótrúlega spennandi. Krefjandi örugglega, en ég er bara spenntur.“
Ertu að breyta miklu?
„Ekki þannig, ég er bara búinn að breyta útlitinu svolítið inni í búðinni. Ég er enn þá með svipaða vöru en búinn að taka inn eitthvað nýtt. Svo á þetta bara eftir að þróast. Það þarf að sjá taktinn í þessu, sjá hvað virkar og hvað ekki, og svo bara panta inn það sem mér líst vel á þegar að því kemur.“

Eina úraverslunin á Suðurnesjum
Hvernig var fyrsti dagurinn?
„Hann var mjög góður, virkilega góður og langt fram úr væntingum. Það kom ótrúlega mikið af fólki; sumir komu bara að heilsa og spjalla, það var alveg frábært.“
Þannig að það er alveg grundvöllur fyrir svona sérverslun í bænum?
„Já, ég held það. Þetta er eina úraverslunin á Suðurnesjunum og það er alltaf einhver sem vantar úr eða batterí. Svo finnst mér áhuginn á skartgripum líka vera að aukast hjá fólki. Þannig að ég held að þessi búð eigi fullan rétt á sér í dag.“
Og þú sérð fullt af möguleikum?
„Já, ekki spurning. Annars væri ég ekki í þessu.“
Klassísk úr og vasahnífar á sterum
Hvað er „heitt“ í dag?
„Ég er rosa hrifinn af Tissot-úrunum. PRX-línan er mjög vinsæl og heit vara á flottu verði. Svo er ég líka með úr frá Raymond Weil og Orient sem ég er mjög hrifinn af – þau eru á flottu verði miðað við að vera sjálftrekt úr. En svo er ég með alveg heilan helling af batteríisúrum, bæði dömu- og herraúr.“
Og gömlu góðu Casio-úrin, eru þau ennþá til?
„Gömlu góðu Casio-úrin eru enn þá til og það á bara eftir að bætast í úrvalið þar. Svo er ég með nóg af gull- og silfurvöru. Við erum með allt frá 5.000 krónum og upp úr, þannig að allir geta komið og verslað hér. Silfurhálsmenin seljast alltaf vel og hjartað er til dæmis alltaf klassík. Ég trúi ekki öðru en að fólk finni eitthvað fyrir sig eða aðra hérna inni.“
Helgi Líndal er einnig að selja Leatherman fjölnotatól og býður upp á áletrun á þau. „Leatherman er geggjuð græja og í raun bara gamli góði vasahnífurinn á sterum og frábær gjöf fyrir iðnnema.“
Þú ert að byrja hérna nánast beint eftir útskriftir úr skólunum, hefðirðu kannski þurft að vera mánuði fyrr á ferðinni?
„Já og nei, þetta var svona eina tímasetningin sem hentaði og var í boði. Við þurftum svolítinn tíma í að breyta hér inni. Svo tók tíma að hafa samband við heildsala og fá nýjar vörur. Ég tók til dæmis inn ný ilmkerti sem heita By Krummi og eru með ótrúlega skemmtilegum lyktum.“
Framtíðin og fjölskyldustuðningurinn
Verður þú á bak við alla daga að smíða, eða hvað ætlarðu að gera við gullsmíðina?
„Já, já, ég mun fara að smíða einhvern lager sjálfur eftir mig. Núna gefst loksins almennilegur tími í það. Það er náttúrulega kostnaðarsamt þannig að það tekur tíma, en hægt og rólega mun ég byggja upp ágætis lager. Margir komu í dag og spurðu einmitt um hluti eftir mig, en því miður átti ég engan lager eins og er. En það kemur.“
Hverjir verða með þér í vinnunni?
„Eins og staðan er núna er ég einn, en mamma mín og Elsa kærastan mín eru búnar að hjálpa mér hérna í allan dag. Ég held að þær muni koma og hjálpa mér af og til.“
Mamma þín er nú með smá verslunarreynslu hér við Hafnargötuna ásamt systur sinni?
„Já, þær systur ráku SI-verslunina að Hafnargötu 61 í mörg ár, þannig að þær þekkja rekstur á Hafnargötunni vel.“
Hvernig ætlarðu svo að hafa opið?
„Eins og staðan er núna stefni ég á að hafa opið frá 10 til 18 alla virka daga og frá 11 til 14 á laugardögum. Það gæti svo sem breyst, en það er allavega hugmyndin í dag.“


Hannah fjölskyldan kveður nú eftir 59 ár í rekstri.








