Mannlíf

Varð Suðurnesjamaður vegna áhuga og ástar á samfélaginu
Einar Hannesson er hér með nýju framlínufólki Reykjanesbæjar; Gunnlaugi Kárasyni, Margréti Þórarinsdóttur og Vihjálmi Árnasyni ásamt Benedikt Gíslasyni, bankastjóri Arion banka.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 5. júní 2026 kl. 06:24

Varð Suðurnesjamaður vegna áhuga og ástar á samfélaginu

Einar Hannesson stýrir nýju útibúi Arion banka og Varðar í Reykjanesbæ.

„Mér fannst þetta strax frá upphafi vera mjög spennandi verkefni,“ segir Einar Hannesson, sem ráðinn hefur verið sem svæðisstjóri einstaklinga í nýju útibúi Arion banka og Varðar trygginga á Reykjanesi.

Einar hlakkar til að takast á við þessa nýju áskorun en þetta er í fyrsta sinn í mörg ár sem Arion opnar útibú utan höfuðborgarsvæðisins.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

„Já, það er svo margt að gerast hér og mikil fólksfjölgun auðvitað á síðustu árum. Okkur hjá Arion langar að vera nær fólki hér og taka þátt í uppbyggingunni með því að láta fjármál og tryggingar vinna saman.“

Orðinn meiri Suðurnesjamaður
en Maddý

Þrátt fyrir að Einar sé fæddur og uppalinn á höfuðborgarsvæðinu kveðst hann vera Keflvíkingur í húð og hár. Hann hefur búið í Reykjanesbæ  ásamt konu sinni, Magndísi Andrésdóttur, frá árinu 2005. Magndís (sem alltaf er kölluð Maddý) er frá Keflavík. Maddý fullyrðir að Einar sé þó eiginlega orðinn meiri Keflvíkingur en hún. Ef Einar er ekki í vinnunni megi finna hann í margvíslegu sjálfboðaliðastarfi í æskuliðsstarfi íþróttanna, á spjalli við vini og kunningja í heitu pottunum eða sveiflandi kylfu úti á golfvellinum.

„Æ, ég verð bara leiðinlegur ef ég sit of lengi á rassinum,“ segir Einar og hlær. „Ég þarf að hafa eitthvað fyrir stafni.“

Raðar kátur upp stólum

Hvað leiddi ykkur Maddý fyrst saman til Reykjanesbæjar?

„Árið 2004 fór ég að vinna hjá Icelandair, sem forstöðumaður flugafgreiðslusviðs. Svo fluttumst við hingað í kjölfarið. Hjá Icelandair var ég yfirmaður um 300 manna hóps og kynntist því strax fjölda fólks á svæðinu. Við ætluðum bara að vera hér í eitt ár og meta svo stöðuna. Síðan eru liðin, hvað? Tuttugu og eitt ár!“

Einar segir að það hafi gefið honum ótrúlega mikið að komast inn í samfélagið á Reykjanesi.

„Fyrir mér er það til dæmis bara geggjað að raða upp stólum fyrir körfuboltaleiki. Verkefnin skipta ekki öllu máli heldur frekar hitt, sem er að gera það sem þarf að gera og vera virkur þátttakandi í samfélaginu.“

Gaman að ráða ungt fólk af svæðinu

Arion samstæðan opnaði nýja útibúið þann fimmta maí síðastliðinn með pompi og pragt og er það staðsett á Aðaltorgi, skammt frá alþjóðaflugvellinum. Einar segir að með opnun útibúsins vilji Arion styðja enn þéttar við bakið á athafnasömum einstaklingum og fyrirtækjum á Reykjanesi og vera með í því að byggja upp blómlegt samfélag. Tryggingafélagið Vörður, sem er hluti af Arion, hefur enn fremur fært starfsemi úr Krossmóum yfir á Aðaltorg. Allt starfsfólk útibúsins er búsett á svæðinu og þekkir því vel til samfélagsins.

„Það er svo gaman að ráða til okkar ungt og efnilegt fólk af svæðinu. Við réðum til dæmis til okkar sex unga  umsækjendur og horfðum þá sérstaklega eftir frumkvæði og drifkrafti í fari þeirra en það eru eiginleikar sem einkenna menninguna hjá Arion.“

Markar viss tímamót hjá Arion

Opnunin markar viss tímamót hjá Arion banka því að bankinn hefur ekki opnað nýtt útibú í langan tíma. Þá á Vörður sér langa sögu í Reykjanesbæ en tryggingafélagið hefur verið með útibú í sveitarfélaginu síðan 1999.

„Fólki finnst auðvitað gott að geta komið og rætt stórar ákvarðanir við okkur undir fjögur augu,“ segir Einar. „Við skiljum það og tökum vel á móti öllum. Svo hvetjum við fólk líka bara til að líta inn í útibúið, skoða aðstöðuna og hitta á okkur. Hér er alltaf heitt á könnunni.“

Arion og Vörður opnunarpartý maí 2026

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar