Fjóla í toppbaráttunni
Fjóla Margrét Viðarsdóttir, afrekskylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja, hefur staðið sig vel og verið í toppbaráttunni á tveimur fyrstu stigamótum ársins þar sem bestu kylfingar landsins eigast við.
Fjóla endaði í 2. sæti í Reykjanesmótinu sem fór fram á Hólmsvelli í Leiru. Hún lék á 75-76 eða níu yfir pari.
Hún endaði í 3. sæti í Korpubikarnum um síðustu helgi en hann fór fram á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík. Þar lék hún á 69-75-74, tveimur yfir pari.
Fjóla Margrét er í 2. sæti stigalistans eftir tvö mót en hún verður aftur á ferðinni í næstu viku þegar þriðja stigamót sumarsins fer fram.
Fjóla, sem er 19 ára gömul, sagði í viðtali við Víkurfréttir að hún væri búin að æfa af krafti í allan vetur og það sé að skila sér í góðu golfi. Hún er í Golfklúbbi Suðurnesja en hefur einnig æft með afreksfólki Golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði.







