Grindavík sótti ekki gull í greipar Þróttara
Grindvíkingar máttu þola 2-0 tap gegn Þrótti Reykjavík í Lengjudeild karla á mánudagskvöldið.
Leikið var í 7. umferð deildarinnar á AVIS vellinum í Laugardal að viðstöddum 430 áhorfendum. Heimamenn í Þrótti komust yfir á 39. mínútu með marki frá Kára Kristjánssyni og leiddu 1-0 í hálfleik. Grindvíkingum tókst ekki að knýja fram jöfnunarmark og það var svo Örn Bragi Hinriksson sem innsiglaði 2-0 sigur Þróttara á 71. mínútu leiksins. Svekkjandi tap hjá Grindavík sem fer stigalaust heim af þessum útivelli.
Breytingar á leikjaplani fram undan
Nokkuð hlé verður nú á leikjum liðsins þar sem næsta leik, sem átti að fara fram laugardaginn 6. júní gegn Gróttu, hefur verið frestað. Næsti leikur Grindavíkur verður því á sjálfan þjóðhátíðardaginn, miðvikudaginn 17. júní kl. 14:00: Grindavík - Fylkir









