Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám

Viðskipti

Bústoð lokar í sumar - sviptingar í verslun í Reykjanesbæ
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 1. júní 2026 kl. 10:20

Bústoð lokar í sumar - sviptingar í verslun í Reykjanesbæ

Húsgagnaverslunin Bústoð í Keflavík mun loka í sumar en nýopnuð verslun í Garðabæ heldur áfram. „Reksturinn í Reykjanesbæ hefur því miður ekki borið sig og þrátt fyrir að hafa haldið í vonina, fjárfest í versluninni og lagt mikið í nýtt vöruúrval og endurbætur, þá hefur það ekki dugað til,“ segir Björgvin Árnason, einn eigenda fyrirtækisins í færslu á Facebook.

Verslunin hefur verið í rekstri í hálfa öld en Björgvin og fleiri keyptu reksturinn af Róberti Svavarssyni fyrir þremur árum. Þegar Bústoð lokar verður engin húsgagnaverslun í rekstri á Suðurnesjum.

Nokkrar sviptingar hafa verið í verslunarrekstri í Reykjanesbæ að undanförnu. Verslunin Kóda hætti fyrr í vetur eftir rúm fjörutíu ár og þar á undan lokaði Krambúðin sem upphaflega var Sparkaup. En það eru líka jákvæðar fréttir því Helgi Líndal hefur keypt rekstur Georgs V. Hannah og er að opna þar úra- og gjafavöruverslun en Hannah fjölskyldan hafði rekið verslun á sama stað í meira en hálfa öld.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Hér að neðan má sjá færslsu Björgvins:

Að sigla vindinn

„Bústoð er ekki að hætta rekstri.

Hins vegar höfum við tekið þá erfiðu ákvörðun að loka versluninni okkar í Reykjanesbæ í sumar en halda áfram með Bústoð í Garðabæ.

Það er ákvörðun sem ég tek með sorg í hjarta, enda hef ég starfað hjá Bústoð í Reykjanesbæ í meira en 13 ár, þar af undanfarin rúm þrjú ár sem eigandi.

Á þessum árum byggðum við upp öflugt fyrirtæki sem fór úr því að velta um 70 milljónum króna árið 2014 , í yfir 280 milljónir á árunum 2021–2022. Það voru sannkölluð góðærisár. Þegar ég keypti reksturinn árið 2023 tók hins vegar við allt annað rekstrarumhverfi næstu ár. Kostnaður hefur hækkað gríðarlega á sama tíma og samkeppnin hefur harðnað verulega. Rekstrarforsendur margra sérvöruverslana hafa breyst til hins verra og við höfum ekki farið varhluta af því.

Sem betur fer tókum við þá ákvörðun að opna verslun í Garðabæ. Þar hefur Bústoð náð til nýs og stærri markaðar, viðskiptavinahópurinn breikkað og meðalaldur viðskiptavina lækkað verulega. Við sjáum því áfram mikil tækifæri fyrir fyrirtækið til framtíðar.

Bústoð mun því halda áfram að dafna, en því miður ekki lengur með starfsemi í Reykjanesbæ. Ef ég mætti velja myndi ég miklu frekar vera að tilkynna lokun annars staðar en í mínum eigin heimabæ. En sem eigandi þarf ég að horfa raunsætt á stöðuna. Reksturinn í Reykjanesbæ hefur því miður ekki borið sig og þrátt fyrir að hafa haldið í vonina, fjárfest í versluninni og lagt mikið í nýtt vöruúrval og endurbætur, þá hefur það ekki dugað til.

Staðreyndin er sú að í dag þarf gríðarlega mikla veltu til að standa undir þeim kostnaði sem fylgir rekstri verslana. Verðbólga, launahækkanir og annar rekstrarkostnaður hafa breytt leiknum á mjög skömmum tíma.

Verslunin í Reykjanesbæ lokar þó ekki strax. Strax hefjum við rýmingarsölu sem mun standa yfir í sumar á meðan birgðir endast. Þar gefst tækifæri til að gera virkilega góð kaup og ég hvet alla til að kíkja við.

Að lokinni lokun munum við Birgitta standa vaktina í Garðabæ og taka þar áfram á móti viðskiptavinum með sama metnaði og áður.

Við munum jafnframt halda áfram að styðja við íþróttastarf og menningarlíf á Suðurnesjum. Þótt verslunin flytjist burt slær hjartað okkar áfram hér og mun alltaf gera það.

Ég vil sérstaklega þakka fyrrverandi samstarfsaðila mínum og núverandi leigusala fyrir skilning, stuðning og gott samstarf í gegnum þetta ferli. Þó okkur þyki öllum þessi niðurstaða afar sár, hefur verið mikilvægt að finna þann skilning sem sýndur hefur verið.

Vonandi sé ég ykkur sem flest í Bústoð í sumar, fyrst í Reykjanesbæ og svo í Garðabæ.“

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar