Íslandsmeistaratitlinum fagnað með stæl í Grindavík - myndir og viðtöl
Hundruð Grindvíkinga tóku á móti Íslandsmeisturunum í körfubolta þegar þeir komu keyrandi inn í bæinn með bikarinn hátt á lofti þaðan sem haldið var í íþróttahúsið og titlinum fagnað. Ólafur Ólafsson, fyrirliði fór fyrir hópnum og hélt Íslandsbikarnum á lofti í glæsilegum vörubíl frá Jóni og Margeiri.
Þegar komið var í íþróttahúsið fóru leikmenn og aðilar liðsins á svið og Jóhann Þór Ólafsson þjálfari liðsins þakkaði fyrir frábæran stuðning og sagði titilinn vonandi hjálpa til í endurreisn samfélagsins í Grindavík.
Leikmenn gáfu eiginhandaráritanir og flestir stuðningsmenn voru klæddir Grindavíkurtreyju. Víkurfréttir ræddu við nokkra stuðningsmenn, styrkaraðila og liðsmenn UMFG sem voru glaðir.
Myndasafn fylgir einnig.
