Viðskipti

Viktor Steinn ráðinn gæðastjóri Skólamatar
Fimmtudagur 28. maí 2026 kl. 14:48

Viktor Steinn ráðinn gæðastjóri Skólamatar

Viktor Steinn Sighvatsson Jensen hefur verið ráðinn gæðastjóri Skólamatar. Viktor mun hafa umsjón með  þróun og viðhaldi gæðakerfis og gæðahandbókar fyrirtækisins ásamt því að sinna fræðslu og þjálfun starfsfólks, nýsköpun og vöruþróun. 

Viktor Steinn er með BS og MSc í matvælafræði frá Háskóla Íslands en hann stundaði einnig skiptinám í University of Wisconsin í Madison í Bandaríkjunum. Hann starfaði áður hjá Eurofins í Danmörku og í gæða- og vöruþróunarteymi Ölgerðarinnar.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

„Ég er afar spenntur fyrir þessu nýja starfi og þakka það traust sem mér er sýnt. Ég hlakka til að takast á við nýjar áskoranir með frábæru samstarfsfólki“ segir Viktor en hann hóf störf þann 18. maí síðastliðinn.

„Við erum virkilega ánægð að fá Viktor til liðs við okkur og teljum að hann passi einstaklega vel inn í Skólamatarfjölskylduna. Reynsla hans og þekking mun nýtast vel í starfi hans sem gæðastjóri og fellur vel að áherslum Skólamatar um gæði og öryggi,“ segir Jón Axelsson, forstjóri Skólamatar.

Skólamatur er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á ferskum og næringarríkum mat fyrir börn í leik- og grunnskólum. Hjá Skólamat starfa um 260 starfsmenn á um 130 starfsstöðvum á suðvesturhorni landsins.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar