Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám

Viðskipti

Anna Hildur W Björnsdóttir til Ísland Duty Free
Fimmtudagur 21. maí 2026 kl. 06:42

Anna Hildur W Björnsdóttir til Ísland Duty Free

Ísland Duty Free hefur ráðið Önnu Hildi W. Björnsdóttur í stöðu framkvæmdastjóra mannauðs og menningar fyrirtækisins.

Anna Hildur hefur víðtæka reynslu og þekkingu á málaflokknum úr alþjóðlegu rekstrarumhverfi. Hún hefur síðustu ár starfað á alþjóðamarkaði, nú síðast hjá Carbon Recycling International (CRI), þar sem hún sinnti mannauðs- og menningarmálum þvert á starfsemi fyrirtækisins á Íslandi, í Danmörku, Póllandi og Kína. Þar áður starfaði hún meðal annars sem mannauðsstjóri hjá Travelshift ehf., Iceland Hotel Collection by Berjaya og sem People & Culture Business Partner hjá IKEA, þar sem hún studdi við framkvæmd mannauðsstefnu í fjölbreyttu umhverfi. Anna Hildur er með meistaragráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands auk meistaragráðu í sálfræði frá sama skóla.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Endurspeglar vel þá menningu sem Ísland Duty Free vill byggja upp

„Við erum svo sannarlega heppin og mjög ánægð með að fá Önnu Hildi til liðs við okkur. Hún hefur sterkan bakgrunn, frábæra alþjóðlega reynslu og áralangan feril að baki við uppbyggingu og stefnumótun mannauðsmála þvert á landamæri. Gildi Önnu Hildar og sýn á starfið tóna fullkomlega við stefnu Ísland Duty Free. Hún endurspeglar vel þá menningu sem við viljum byggja upp, sem grundvallast á trausti og fjölskylduvænu samfélagi. Hún kemur með ferskt sjónarhorn inn í heim ferðaverslunar og við erum mjög spennt að hefja þá vegferð saman,“ segir Liam Grundy, framkvæmdastjóri Ísland Duty Free.

„Það er virkilega spennandi að ganga til liðs við öflugt teymi Ísland Duty Free og taka þátt í áframhaldandi þróun fyrirtækisins á þessum tímamótum. Á mínum ferli hef ég lagt ríka áherslu á að styðja við starfsfólk og teymi í gegnum umbreytingar og ég trúi staðfastlega að mikilvægasta undirstaða alls árangurs sé að byggja upp og hlúa að gagnkvæmu trausti. Nú þegar uppbyggingin á verslun Ísland Duty Free í Leifsstöð er á lokametrunum hlakka ég mikið til að vinna með teyminu að áframhaldandi uppbyggingu á framtíðarstefnu, starfsumhverfi og menningu fyrirtækisins,“ segir Anna Hildur.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar