Fréttir

Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur í Reykjanesbæ hafa náð samkomulagi um nýjan meirihluta
Þeir félagar Vilhjálmur og Gunnlaugur hittust við viðburð í gær og ræddu þar við Kjartan Má bæjarstjóra síðustu tólf ára í Reykjanesbæ. VF/pket.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 20. maí 2026 kl. 18:59

Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur í Reykjanesbæ hafa náð samkomulagi um nýjan meirihluta

Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur hafa komist að samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Samkomulag þess efnis verður undirritaður í Vatnsnesi á morgun, fimmtudag kl. 17. 

Flokkarnir hafa átt viðræður frá því á sunnudagsmorgun og komist að samkomulagi um öll helstu atriði. Hverjir muni gegna stærstu embættum innan stjórnkerfis sveitarfélagsins, þ.e. bæjarstjóri, forseti bæjarrstjórnar og formaður bæjarráðs, verður kynnt á fundinum á morgun sem og fleiri atriði málefnasamnings.

Vilhjálmur Árnason hefur lýst því yfir að viðræðurnar hafi gengi vel en hefur ekki gefið það út hvort hann muni taka strax við sem bæjarstjóri en flokkurinn kynnti hann sem bæjarstjóraefni fyrir kosningarnar og því einungis spurning hvenær það muni gerast, ekki hvort.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Alla vega er ljóst að nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks með fimm bæjarfulltrúa og Miðflokks með einn bæjarfulltrúa taka við stjórn Reykjanesbæjar á næstu dögum.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar