Suðurnesjamenn í brúnni þegar Thule verður að Lite
Tveir Suðurnesjamenn spila lykilhlutverk í stórfelldum breytingum á bjórvörumerkinu Thule, sem nú verður hreinræktaður „Lite“ bjór. Atli Sigurður Kristjánsson stýrir breytingunum sem framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Coca-Cola, á meðan leikarinn Jón Bjarni fylgir nýja tóninum eftir á skjánum í stórhuga auglýsingaherferð.
Thule á sér langa sögu og hefur verið bruggaður á Akureyri allt frá árinu 1966. Nú er verið að skerpa á stefnunni og breyta bjórnum í 4,4% Lite bjór sem er glútenfrír, með minna af kolvetnum og færri kaloríum. Breytingin þýðir þó ekki að ný vörulína líti dagsins ljós, heldur verður Thule einfaldlega alltaf Lite upp frá þessu.
Vildu gera Thule meira Thule
Atli Sigurður Kristjánsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Coca-Cola á Íslandi, segir breytingarnar miða að því að mæta óskum neytenda í dag sem leita í auknum mæli í léttari valkosti án þess að fórna bragðinu.
„Við vildum gera Thule meira Thule. Hann hefur alltaf verið léttur í anda; kaldur, ferskur, einfaldur og íslenskur í gegn. Hann er ekki að reyna að vera flókinn eða hátíðlegur, heldur á hann að geta hlegið að sjálfum sér og Íslandi í leiðinni,“ útskýrir Atli Sigurður.
Handrit frá Hugleiki og fyrsta herferðin bönnuð
Nýrri staðfærslu fylgir hressileg auglýsingaherferð undir slagorðinu Alltaf léttur. Alltaf lite. Þar fer annar kunnur Suðurnesjamaður mikinn, en það er leikarinn Jón Bjarni sem fer með aðalhlutverkið í auglýsingunum á móti félaga sínum Nikulási.
Handritin eru skrifuð af Hugleiki Dagssyni og byggja á séríslenskum augnablikum og húmor sem flestir landsmenn þekkja. Thule á nefnilega dálítið skrautlega sögu þegar kemur að auglýsingum en Atli Sigurður rifjar upp gamla og dálítið djarfa sögu frá upphafsárum bjórsins.
„Það tók markaðsteymi Thule nokkur ár að finna rétta tóninn þegar bjórinn var nýkominn á markað. Eitt skemmtilegasta dæmið er frá 1969 þegar ein fyrsta sjónvarpsauglýsing Thule vakti gríðarlega athygli. Þar bað fúlskeggjaður kúreki, á leið til aftöku, um einn ískaldan Thule sem sína hinstu ósk. Það þótti fullmikið fyrir sinn tíma, olli talsverðu uppnámi og var auglýsingin bönnuð eftir aðeins fáeinar sýningar í sjónvarpi,“ segir Atli Sigurður og brosir að lokum: „Ég vona að við séum búin að finna rétta tóninn fyrir íslenskt samfélag í dag.“
Nýi, létti Thule-bjórinn verður fáanlegur á næstu dögum og vikum á börum, veitingastöðum og í Vínbúðunum.
Í spilaranum er ein af auglýsingunum. Það eru aldurstakmörk á spiluninni og því þarf að horfa á auglýsinguna á Youtube.






