K Steinarsson 1-15.júní
K Steinarsson 1-15.júní

Viðskipti

Bláa lónið sækir á ný mið
Þriðjudagur 16. júní 2026 kl. 14:07

Bláa lónið sækir á ný mið

Skrifað hefur verið undir samkomulag um samruna tveggja af stærstu fyrirtækjum íslenskrar ferðaþjónustu, Bláa Lónsins hf. og Arctic Adventures hf. Samkomulagið er gert með hefðbundnum fyrirvara um áreiðanleikakönnun á báðum félögum, sem og samþykki Samkeppniseftirlitsins og hluthafafunda beggja félaga.

Með samrunanum verður til gríðarlega öflugt og breiðvirkt ferðaþjónustufyrirtæki. Bláa Lónið er leiðandi í upplifunar-, heilsu- og vellíðunarferðaþjónustu, á meðan Arctic Adventures sérhæfir sig í ævintýra- og afþreyingarferðum, auk þess að reka fjölsótta áfangastaði á borð við Kerið, Fjaðrárgljúfur og Raufarhólshelli.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Veltan yfir 34 milljarðar króna

Umsvif hins sameinaða félags verða mikil en samanlagðar tekjur fyrirtækjanna tveggja námu um 34,3 milljörðum króna á árinu 2025. Stöðugildi félaganna eru samtals um 1.120, þar af 780 hjá Bláa Lóninu og 340 hjá Arctic Adventures.

Samhliða þessum stóru tíðindum var tilkynnt að Bláa Lónið hafi nú hafið formlegan undirbúning að skráningu á íslenskan hlutabréfamarkað.

Horfa fram á áframhaldandi vöxt

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, segir kaupin mikilvægt skref í þá átt að staðsetja Ísland sem einn fremsta áfangastað heims í vellíðunarferðamennsku:

„Upplifun og vellíðan er bæði okkar sérstaða og styrkleiki.“

Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures, tekur í sama streng og kallar þetta mikil tímamót:

„Bláa Lónið hefur byggt upp eitt sterkasta vörumerki Íslands á alþjóðavísu og með sameiginlegum styrk félaganna skapast einstakt tækifæri til áframhaldandi vaxtar og þróunar.“

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans er ráðgjafi kaupanda (Bláa Lónsins) í viðskiptunum og ARMA Advisory er ráðgjafi seljanda (Arctic Adventures).

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar