Frá raunfærnimati til frekara náms
Síðastliðið haust tók Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) aftur upp námsleiðina leikskóla- og stuðningsfulltrúabrú eftir nokkurra ára hlé. Ástæðan var skýr: Sífellt fleiri luku raunfærnimati fyrir leikskóla- og stuðningsfulltrúabrúna og kölluðu eftir tækifæri til að halda áfram námi í sínu nærumhverfi.
Raunfærnimat gerir fólki kleift að fá þá þekkingu og reynslu sem það hefur aflað sér í starfi metna. Þau sem hafa náð 23 ára aldri og starfað í leik-eða grunnskóla í að minnsta kosti þrjú ár geta átt kost á slíku mati. Fyrir mörg er raunfærnimatið fyrsta skrefið í áframhaldandi námi og starfsþróun, aðrir nýta það til að fá þekkingu sína formlega viðurkennda eða nýta matið sem hluta af undirbúningi fyrir frekara nám. Þannig eru margvísleg tækifæri í raunfærnimati.
Leikskóla- og stuðningsfulltrúabrúin varð til sem næsta skref fyrir þátttakendur sem vilja byggja frekar ofan á þá reynslu og þekkingu sem þeir hafa aflað sér í starfi. Námsleiðin er ætluð ófaglærðu starfsfólki, 23 ára og eldra, sem hefur að lágmarki þriggja ára reynslu af uppeldi og umönnun barna í leik- og grunnskólum.
Viðtökurnar létu ekki á sér standa. Í dag eru tæplega 30 þátttakendur í náminu sem veitir þeim tækifæri til að efla fagþekkingu sína, styrkja stöðu sína á vinnumarkaði og opna leiðir að frekara námi.
Það býr mikill mannauður innan leikskólanna og það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með þeim metnaði og áhuga sem þátttakendur sýna náminu. Mörg þeirra sem nú sækja nám hafa um árabil gegnt mikilvægu hlutverki í leik- og grunnskólum á Suðurnesjum og búa yfir dýrmætri reynslu og þekkingu. Fyrir mörg skiptir miklu máli að geta sótt nám í heimabyggð og þróað sig áfram í starfi án þess að þurfa að sækja langt að.
MSS lítur á það sem eitt af sínum lykilhlutverkum að vera í nánu sambandi við atvinnulíf og samfélag á Suðurnesjum og þróa námsframboð sem svarar þörfum hverju sinni. Endurkoma námsleiðarinnar er þannig gott dæmi um hvernig hægt er að þróa námsframboð í takt við þarfir samfélagsins og skapa tækifæri til náms og starfsþróunar í heimabyggð.
Skráning í námsleiðina er opin allt árið og geta nýir þátttakendur hafið nám þegar þeim hentar. Fyrsta skrefið er oft það erfiðasta – en það getur líka opnað dyr að nýjum tækifærum. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Lindu verkefnastýru eða Steinunni náms- og starfsráðgjafa til að fá upplýsingar og ráðgjöf um næstu skref.
Linda Björk Pálmadóttir,
verkefnastýra
Steinunn Björk Jónatansdóttir,
náms- og starfsráðgjafi








