Jón Ólafur Jónsson dró þjóðhátíðarfánann að húni
Það kom í hlut Jóns Ólafs Jónssonar að draga þjóðhátíðarfánann að húni í skrúðgarðinum í Keflavík í dag. Jón Ólafur er einn af gulldrengjunum úr Keflavík, var atkvæðamikill knattspyrnumaður á árunum 1963 til 1977, landaði mörgum titlum og lék tvo landsleiki fyrir hönd Íslands. Jón Ólafur hefur einnig verið virkur í félagsstarfi ýmiskonar og sat tvívegis í bæjarstjórn Keflavíkur.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag þegar fáninn var dreginn að húni. VF/hilmarbragi




Fleiri myndir frá þjóðhátíðardeginum eru væntanlegar.








