Mannlíf

Fjölbreytt og fjölskylduvæn þjóðhátíðardagskrá í Reykjanesbæ
Þriðjudagur 16. júní 2026 kl. 09:50

Fjölbreytt og fjölskylduvæn þjóðhátíðardagskrá í Reykjanesbæ

Þjóðhátíðardegi Íslendinga verður fagnað í Reykjanesbæ með hátíðardagskrá og fjölbreyttri skemmtidagskrá sem fram fer í skrúðgarðinum í Keflavík og í ungmennagarðinum við 88-húsið.

Hátíðardagskrá
Dagskráin hefst með hátíðarguðþjónustu í Keflavíkurkirkju klukkan 12:00. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar fyrir altari og kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Að guðþjónustu lokinni verður gengið fylktu liði með hátíðarfánann í skrúðgarðinn í Keflavík undir forystu skáta úr Heiðabúum og Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Þar tekur við hefðbundin hátíðardagskrá. Jón Ólafur Jónsson, íþróttakempa og félagsmálafrömuður dregur þjóðfánann að húni og Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri flytur honum þakkarorð. Við þetta tilefni syngur Karlakór Keflavíkur þjóðsönginn. Setningarræða dagsins er í höndum Margrétar Þórarinsdóttir, forseta bæjarstjórnar. Ástríður Auðbjörg Halldórsdóttir, nýstúdent, verður í hlutverki fjallkonu og flytur ljóð. Ræðu dagsins flytur Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Íbúar eru hvattir til að fjölmenna í skrúðgarðinn og taka þátt í þessari hátíðlegu athöfn.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Skemmtidagskrá
Að lokinni hátíðardagskrá verður boðið upp á skemmtidagskrá sem byggist að stórum hluta á framlagi þeirra glæsilegu list- og íþróttahópa sem við erum svo heppin að eiga í bænum okkar. Ungleikhúsið, Leikfélag Keflavíkur, Taekwondodeild Keflavíkur og DansKompaní fara þar fremst í flokki og bjóða upp á glæsileg atriði sem eru afrakstur vetrarstarfsins hjá þeim. Þá mun söngkonan Guðrún Árný leiða söng með allri fjölskyldunni en hún hefur slegið í gegn með svokölluðu „sing-along“ viðburðum, Sirkus Íslands mætir á svæðið og Guðjón Kristjánsson nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og sigurvegari söngkeppni framhaldsskólanna slær botninn í dagskrá á sviði.

Alls kyns leikjastöðvar, verða á víð og dreif í garðinum og eru þær í höndum flokksstjóra úr Vinnuskóla Reykjanesbæjar. Þessu til viðbótar verður hægt að fara á hestbak, fá andlitsmálningu, hoppa í hoppuköstulum og kaupa þjóðhátíðarnammi. Allt eins og það á að vera. Skemmtidagskráin er öllum að kostnaðarlausu.

Frá kl. 18-20 verður boðið upp á dagskrá fyrir ungmenni í ungmennagarðinum við 88-húsið. Þar verður margs konar fjör m.a. sápubolti og búbblubolti, vatnsbað og körfuboltamót og þar skemmta DansKompaní og Ízleifur.

Aðrir viðburðir og frítt í strætó
Að venju verður úrval kaffihlaðborða á ýmsum stöðum, auk þess sem ókeypis aðgangur er í Duus safnahús í tilefni dagsins en þar eru m.a. nýopnaðar sumarsýningar listasafnsins auk skráningarsýningar á verkum sem listfræðingurinn Aðalsteinn Ingólfsson hefur gefið Listasafni Reykjanesbæjar. Boðið verður upp á kaffi og kleinur á meðan birgðir endast frá kl. 14-16.

Innanbæjarstrætó gengur samkvæmt helgaráætlun en til kl. 21 (síðasti vagn fer af stað kl. 20) og frítt verður í strætó.
Gleðilega þjóðhátíð!

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar