K Steinarsson 1-15.júní
K Steinarsson 1-15.júní

Fréttir

Allt til fyrirmyndar í stóreftirliti lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli
Frá eftirliti lögreglunnar. Myndir af Facebook lögreglunnar á Suðurnesjum.
Mánudagur 15. júní 2026 kl. 10:46

Allt til fyrirmyndar í stóreftirliti lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli

Lögreglan á Suðurnesjum fór í umfangsmikið eftirlit á flughlaði Keflavíkurflugvallar í gærmorgun þar sem sjónum var beint að öryggi á vinnusvæðinu. Í eftirlitinu voru ökumenn á fjórða tug vinnuvéla stöðvaðir og var farið ítarlega yfir vinnuvélaréttindi, almenn ökuréttindi og ástand ökumanna við stýrið.

Skemmst er frá því að segja að allir voru með sitt á hreinu og engar athugasemdir voru gerðar, sem lögreglan segir hreint út sagt frábært. Lögreglan hrósar starfsfólki á flughlaðinu fyrir fyrirmyndar vinnubrögð og minnir á að öryggi á vinnustöðum byrji alltaf hjá okkur sjálfum.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar