Mannlíf

Stakk af úr baði og fór óboðinn inn til bæjarstjórans
Ylur óþekktarangi er ekkert ólíkur Emil í Kattholti.
Sunnudagur 14. júní 2026 kl. 20:52

Stakk af úr baði og fór óboðinn inn til bæjarstjórans

Labrador-hvolpurinn Ylur Freyr Haraldsson Dürr hefur dregið til baka fyrri yfirlýsingar um að hann væri „gefins“ eftir að heimilisfólk hans náði andanum, þurrkaði af sér svitann og ákvað að fyrirgefa honum enn einu sinni.

Ylur Freyr, sem er 10 mánaða Labrador-hvolpur í Reykjanesbæ, gengur að eigin sögn undir ýmsum nöfnum á heimilinu. Þar má helst nefna „NEIIII“, „Ertu að grínast?“, „Hvað ertu búinn að gera núna?“ og hið sígilda „Komduuuu!“. Ættarnafnið Dürr notar hann þó aðeins við sérstök tilefni, eða þegar hann er þægur.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Á sinni stuttu ævi hefur Ylur Freyr þegar komið víða við í samfélaginu. Hann hefur meðal annars tætt klósettrúllur, nagað vegg, skemmt tvær barnabækur og tekið að sér óumbeðna aðstoð við skóreimar nágrannakonu (sóknarprestinum í Njarðvík) sem var aðeins að spjalla við aðra nágrannakonu.

Þá hefur hann einnig heimsótt bæjarstjórann óboðinn, og tók að sjálfsögðu bróður sinn með í það ævintýri. Hann hefur farið í göngutúr með nágranna án formlegs boðs, hoppað upp í skottið hjá öðrum nágranna, reynt að gæða sér á músaeitri og stigið af mikilli yfirvegun í málningarbakka hjá nágranna sem var að mála grindverk.

Þrátt fyrir þessa fjölbreyttu ferilskrá vilja aðstandendur Yls meina að þeir séu engir nýgræðingar í hundauppeldi. Þeir benda meðal annars á að bróðir hans sé til mikillar fyrirmyndar. Ylur Freyr hefur þó sjálfur kosið að fara sínar eigin leiðir.

„Ég er svona svolítið eins og Emil í Kattholti. Hrikalega forvitinn, gáfaður og mjög misskilinn,“ gæti Ylur líklega sagt ef hann hefði tök á að svara fyrir sig.

Þess má þó geta að þegar Ylur Freyr mætir á hundasýningar er hann þægastur í heimi og hefur fengið frábærar einkunnir. Það þykir renna stoðum undir þá kenningu að hann kunni vel að haga sér, en kjósi einfaldlega að gera það ekki alltaf.

Síðasta uppátækið var í dag þegar Ylur strauk úr miðju baði og lagði af stað í leiðangur í næstu götu. Þar naut hann þess sérstaklega að fylgjast með fólki hlaupa á eftir sér.

Eftir stutta umhugsun, nokkur djúp andvörp og væntanlega töluvert af handklæðum hefur fjölskyldan þó ákveðið að Ylur Freyr sé ekki lengur gefins.

Að minnsta kosti ekki akkúrat þessa stundina.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar