K Steinarsson 1-15.júní
K Steinarsson 1-15.júní

Mannlíf

Listaverk varð til úr hugmynd á netinu
Mánudagur 8. júní 2026 kl. 09:57

Listaverk varð til úr hugmynd á netinu

Þremur þriggja daga „Masterclass“-námskeiðum í hefðbundinni grjóthleðslu er nýlokið í Höfnum. Leiðbeinandi á námskeiðunum var enginn annar en Dan Snow, einn virtasti grjótlistamaður samtímans, sem kom alla leið frá Vermont í Bandaríkjunum til að kenna á Íslandi.

Sveinn Enok Jóhannsson, sem stóð fyrir námskeiðunum, segir verkefnið hafa heppnast vonum framar þrátt fyrir dæmigert Suðurnesjaveður.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

„Veðrið var tæpt báðar helgarnar, eins og það vill stundum vera hér suður með sjó, en einhvern veginn enduðum við alltaf á sunnudegi í bongóblíðu og sólskini. Og það gerir auðvitað allt betra,“ segir Sveinn Enok glaður í bragði.

Námskeiðin sóttu tuttugu manns, tíu manna hópur hvora helgi, og komu þátttakendur víðs vegar að af landinu og jafnvel lengra að, meðal annars frá Englandi og Norður-Noregi.

Hugmynd sem kviknaði við tiltekt

Að sögn Sveins hófst þetta ævintýri sumarið 2025. Hann hafði þá staðið fyrir fjórum þriggja daga námskeiðum í hefðbundinni grjóthleðslu sem Kristín Kelddal skrúðgarðyrkjumeistari kenndi.

„Í lok eins námskeiðsins var ég að taka saman og ganga frá þegar ég dett niður á síðu hjá Dan Snow. Mér fannst það sem hann var að skapa bæði ótrúlega fallegt og heillandi, svo ég ákvað að hafa samband við hann. Og viti menn, hann svaraði,“ segir Sveinn.

Eitt leiddi af öðru og Snow samþykkti að koma til Íslands sumarið 2026.

Áttaði sig ekki á hversu stórt nafnið var

Sveinn viðurkennir fúslega að hann hafi ekki áttað sig fyllilega á því hversu mikill hvalreki það var að fá Snow til landsins fyrr en Unnsteinn Elíasson, einn helsti grjóthleðslumeistari Íslands og þátttakandi á námskeiðinu, hringdi í hann.

Dan Snow er nefnilega einn af stofnendum The Stone Trust, sem er leiðandi vottunar- og fræðslukerfi í grjóthleðslu í Bandaríkjunum, hefur gefið út tvær bækur og nýtur gríðarlegrar virðingar á sínu sviði.

Björgun á síðustu stundu

Sveinn hafði einsett sér að sjá um að útvega Dan og eiginkonu hans, Elínu, bíl fyrir ferðina svo þau þyrftu ekki að leigja. Daginn áður en hjónin lentu áttaði hann sig hins vegar á því að það hafði algjörlega farið forgörðum í amstri dagsins.

„Góð ráð voru dýr. Ég sendi neyðarbeiðni á strákana hjá Blue Car Rental og hvað haldið þið? Þeir svöruðu strax daginn eftir og bíllinn var sóttur sama dag og Dan og Elín lentu á Íslandi. Fyrir það er ég þeim óendanlega þakklátur. Algjörir höfðingjar.“

Listaverkið: Monument to Rare Coincidence

Afrakstur námskeiðanna tveggja er risavaxið, 10 x 20 metra og 4 metra hátt þurrhlaðið grjótlistaverk sem hannað var af Dan Snow en skipulagt í samstarfi við Svein Enok.

Sjálfur lýsir Dan Snow listaverkinu, sem ber heitið „Monument to Rare Coincidence“ (Minnisvarði um sjaldgæfa tilviljun), sem ákveðnum vitnisburði um náttúruöflin á svæðinu:

Verkið er hugsað sem athugasemd við regluleg flóð á svæðinu, sem verða þegar stórstreymt er og hvassviðri blæs af vestri. Svæðið í kringum suðurhluta verksins breytist tímabundið í kastalagröf (moat), á meðan miðja norðurhlutans verður tímabundið að brunni.

Sveinn horfir stoltur yfir svæðið eftir stranga en gefandi daga: „Það er eiginlega ótrúlegt að standa þarna núna og horfa á þetta allt saman. Hugmynd sem byrjaði með því að ég sat einn að ganga frá eftir námskeið í Höfnum varð að alþjóðlegu samstarfi, nýrri reynslu og nýjum vináttuböndum.“

Sjóðir styrkja námskeiðin

Námskeiðaröðin Fornverk í Höfnum sem Masterclassinn með Dan Snow hefur fengið styrki frá Uppbyggingarsjóði Suðurnesja, Samfélagssjóði Landsbankans og Húsfriðunarsjóði.




Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar