K Steinarsson 1-15.júní
K Steinarsson 1-15.júní

Mannlíf

Ný bók eftir Suðurnesjamanninn Guðbjörn Gunnarsson
Guðbjörn og Margrét systir hans með bókina góðu.
Fimmtudagur 4. júní 2026 kl. 06:33

Ný bók eftir Suðurnesjamanninn Guðbjörn Gunnarsson

Ný bók eftir Suðurnesjamanninn Guðbjörn Gunnarsson hefur vakið athygli en hún fjallar um sjálfsskoðun, ábyrgð, sjálfsvirðingu, andlegt burðarþol og hvernig við finnum aftur tengsl við okkur sjálf í heimi þar sem hraði, samanburður og áreiti hafa tekið yfir stóran hluta daglegs lífs.

„Við lifum á tímum þar sem upplýsingar eru alls staðar, en skilningur verður sífellt sjaldgæfari. Þessi bók er skrifuð fyrir fólk sem vill staldra við, hugsa dýpra og horfast í augu við spurningar sem margir finna fyrir, en fáir ræða opinskátt,“ segir Guðbjörn eða Bubbi eins og hann er jafnan kallaður. Bubbi er einkþjálfari og markþjálfimeð yfir tveggja áratuga reynslu. Hann hefur haldiðfyrirlestra, námskeið og útvarpsþætti um sjálfsþekkingu, heilbrigðar venjur og umbreytingu hugafarsins.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Í starfi og skrifum sameinar hann innsæi og hagnýt verkfæri með áherslu á nærveru, innri kyrrð og varanlegar breytingar.

Í bókinni sem að sögn höfundar er ekki kennslubók heldur spegill þar sem meðal annars er fjallað um:

• sjálfsmynd og innri styrk

• kvíða, skömm og samanburð

• venjur og áhrif þeirra á lífið

• ábyrgð og persónulegan þroska

• hvernig litlar ákvarðanir móta framtíð okkar

Þorgrímur Þráinsson rithöfundur sagði um bókina:

„Ég las merkilega bók í gær. Stórmerkilega. Með þeim áhugaverðari sem ég hef lesið.“

„Ef þið viljið hrista upp í lífi ykkar, hætta að hjakka í sama farinu í skjóli óttans og letinnar, er þessi bók skyldulesning.“

Nánari upplýsingar: ggthjalfun.com

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar