Mannlíf

Dag­skrá sjó­manna­dags­helg­ar­innar í Grinda­vík
Miðvikudagur 3. júní 2026 kl. 15:43

Dag­skrá sjó­manna­dags­helg­ar­innar í Grinda­vík

FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ

17:00 Árleg ganga um Ingibjargarstíg

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Árleg gróðursetning sumarblóma við minnisvarða Ingibjargar Jónsdóttur, fyrrverandi formanns Kvenfélags Grindavíkur. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti.

21:00 Haffi Önnu á Fish House

Haffi snýr heim til Grindavíkur og heldur notalega tónleika á Fish House. Frumsamið efni, kassagítar og ljúf stemning í góðum félagsskap.

LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ

11:00 Skemmtisigling frá Grindavíkurhöfn

Boðið verður upp á skemmtisiglingu frá Grindavíkurhöfn þar sem gestir geta notið sjávarins og upplifað Grindavík frá öðru sjónarhorni.

11:00 Zumba Gold í Kvikunni

Jeanette leiðir hressan og skemmtilegan Zumba Gold-tíma í Kvikunni í boði Krabbameinsfélags Suðurnesja. Tilvalið fyrir alla sem vilja byrja daginn á góðri hreyfingu og gleði.

12:00–16:00 Bylgjulestin við Kvikuna

Bylgjan sendir út beint frá Grindavík. Líf og fjör, tónlist og stemning í hjarta bæjarins.

12:00–18:00 Sundlaugin opin

Sundlaug Grindavíkur verður opin og aðgangur ókeypis yfir daginn. Tilvalið að njóta góðrar stundar með fjölskyldu og vinum.

12:00–17:00 Loforð í Kvikunni

Ljósmyndasýning Grindvíkingsins Láru Lindar Jakobsdóttur þar sem náttúra Grindavíkur fær að njóta sín í fallegum og persónulegum verkum.

12:30-14:00 Sýning á Porce-bílum við Kvikuna

Nokkrir af glæsilegustu Porce-bílum landsins verða til sýnis við Kvikuna. Einstakt tækifæri fyrir bílaáhugafólk á öllum aldri.

13:00–17:00 Klifurturn við Kvikuna

Við setjum upp hæsta klifurturn landsins. Hversu hátt kemst þú?

13:00–15:00 Mótorhjólaakstur Grindjána

Grindjánar mæta á svæðið og bjóða gestum að upplifa akstur á glæsilegum mótorhjólum.

13:30–15:30 Götuboltamót Stinningskalda

Einn vinsælasti dagskrárliður sjómannadagshelgarinnar síðustu ár. Skemmtun fyrir alla aldurshópa. Mótið er öllum opið og skráning stendur yfir.

15:30–16:30 Sápurennibraut í Bröttubrekku

Slökkvilið Grindavíkur býður upp á risasápurennibraut í Bröttubrekku. Hversu hratt þorir þú að fara?

16:30–18:00 Sundlaugarpartí í sundlauginni

Ungmennaráð Grindavíkur býður í partí í sundlauginni með DJ og krapi. Fullkomin leið til að kæla sig niður eftir daginn.

16:00–18:00 Bakkalábandið og gestir á Bryggjunni

Vísissystkinin í Bakkalábandinu flytja gömlu góðu lögin í bland við ný á Bryggjunni. Notaleg tónlist og sannkölluð sjómannadagsstemning.

18:00–21:00 BryggjuPollarnir og Arney á Bryggjunni

BryggjuPollarnir og Arney bjóða upp á létta og skemmtilega stemningu við sjávarsíðuna.

22:00-01:00 RIP í Kvikunni

Unglingahljómsveitin RIP stígur á svið ásamt gestasöngvurum og heldur uppi stórdansleik fram á nótt.

SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ

09:00 Mustad-opið texasmót á Húsatóftavelli

Skemmtilegt golfmót á einum glæsilegasta golfvelli landsins.

13:00 Sjómannamessa í Grindavíkurkirkju

Hátíðleg sjómannadagsmessa. Biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Elínborgu Gísladóttur. Kór Grindavíkurkirkju leiðir söng undir stjórn Kristjáns Hrannars organista og Gissur Páll Gissurarson syngur einsöng. Að lokinni messu verða sjómenn heiðraðir fyrir mikilvægt framlag sitt til samfélagsins með störfum sínum á hafi úti.

14:30 Blómsveigur lagður að Von

Að lokinni messu verður lagður blómsveigur til minningar um týnda og drukknaða sjómenn að minnisvarðanum Von.

12:00–17:00 Sundlaugin opin

Sundlaug Grindavíkur verður opin og aðgangur ókeypis yfir daginn. Tilvalið að njóta góðrar stundar með fjölskyldu og vinum.

13:00–17:00 Loforð í Kvikunni

Ljósmyndasýning Grindvíkingsins Láru Lindar Jakobsdóttur þar sem náttúra Grindavíkur fær að njóta sín í fallegum og persónulegum verkum.

13:00–14:30 Götuboltamót ungmennaráðs

Nú fá ungmenni tækifæri til að taka þátt í götuboltamótinu vinsæla. Þátttökuverðlaun og vegleg verðlaun fyrir efstu sætin.

13:00–17:00 Hoppukastalar og leiktæki við Kvikuna

Frítt verður í hoppukastala, hringekju og teygjuhopp við Kvikuna allan daginn.

14:30–15:30 Kraftaþrautir fyrir krakka

Krakkar fá tækifæri til að reyna á kraftana í skemmtilegum þrautum neðan við Kvikuna.

14:30–16:00 Börnum boðið á hestbak

Arctic Horses mæta með hestana og bjóða yngstu gestunum á hestbak við Kvikuna.

14:30-16:30 Sjómannadagskaffi í Kvikunni

Útgerðarfyrirtæki, Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur og Grindavíkurbær bjóða upp á kaffiveitingar í tilefni dagsins.

15:00 Gunni og Felix

Gunni og Felix bjóða upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

15:30 Sjómannaþrautir í umsjón Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar

Keppt verður í koddaslag, flekahlaupi og kararóðri. Verðlaunin hafa aldrei verið veglegri. Nú reynir á sjómanninn í þér!

16:00 BMX brós

Kraftmikil sýning með mögnuðum trikkum, hraða og dúndrandi stemningu.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar