Heimspekilegar spurningar og pólitísk spenna: Tvær nýjar sýningar opna um helgina
Laugardaginn 30. maí kl. 14:00 verða opnaðar í Listasafni Reykjanesbæjar tvær nýjar einkasýningar sem takast á við tilvistarlegar spurningar, þátttöku áhorfenda og pólitíska spennu samtímans. Annars vegar sýning Steingríms Eyfjörð, Ósamhverf endurskoðun / Asymmetrical Review, og hins vegar sýning Erlu Þórarinsdóttur, Ómur / Resonans.
Sýningarnar standa yfir til 16. ágúst.
Er verkið til ef enginn fylgir fyrirmælunum?
Á sýningu Steingríms Eyfjörð, Ósamhverf endurskoðun, er áhorfandinn settur í óvenjulega og virka stöðu. Í verkum hans birtast leiðbeiningar og tilmæli, sum einföld en önnur nær óframkvæmanleg ef þeim er fylgt bókstaflega.
Ákvörðun áhorfandans um að fylgja tilmælunum eða láta þau vera verður hluti af verkinu sjálfu og merkingu þess. Með þessu vakna knýjandi spurningar um ábyrgð, þátttöku og tilvist listaverksins: Ef enginn fylgir tilmælunum, er verkið þá yfirhöfuð til? Og ef einhver gerir það, hvað er þá raunverulega að birtast: verkið eða manneskjan sem stígur inn í það?
Sýningarstjóri: Daría Sól Andrews.
Kjarnorka eða kærleikur?
Í sýningu Erlu Þórarinsdóttur, Ómur / Resonans, mætast ógn og von, eyðileggingarmáttur og samkennd. Í verkum hennar má sjá endurtekin geómetrísk form og samfelldar línur sem bæði skrásetja hreyfingu og halda henni gangandi.
Inn í þetta flæði blandast textabrot, svo sem Kärnkraft eller kärlek („kjarnorka eða kærleikur“), þar sem stóru spurningarnar standa eftir ósvaraðar en eru sífellt aðkallandi. Verkin verða þannig vitni samtímans; þau draga inn í sig pólitíska spennu, óstöðugleika og mannlega viðkvæmni, án þess þó að festa sig við einn ákveðinn atburð eða tíma.
Sýningarstjórar: Helena Solveigar Aðalsteinsbur og Helga Þórsdóttir.






