Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám

Mannlíf

Flókin fyrirmæli og vitni samtímans
Þriðjudagur 26. maí 2026 kl. 16:17

Flókin fyrirmæli og vitni samtímans

Einkasýningar Steingríms og Erlu opna á laugardag

Tvær nýjar einkasýningar verða opnaðar næstkomandi laugardag, 30. maí, þar sem listamennirnir Steingrímur Eyfjörð og Erla Þórarinsdóttir takast á við tilvistarlegar spurningar, mannlega viðkvæmni og virka þátttöku áhorfandans.

Sýningarnar tvær, sem hlotið hafa styrk frá Safnasjóði, nálgast samtímann og listina hvor á sinn hátt en eiga það sameiginlegt að krefjast viðbragðs eða íhugunar frá þeim sem á horfir.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Býður áhorfandanum að stíga inn í verkið

Sýning Steingríms Eyfjörð ber titilinn Ósamhverf endurskoðun / Asymmetrical Review. Í sumum verka hans er að finna fyrirmæli – sum hver mjög flókin ef þeim er fylgt bókstaflega. Leiðbeiningarnar eiga það til að setja áhorfandann í þá stöðu að þurfa að taka meðvitaða afstöðu: Á ég að fylgja þeim eða ekki?

Í sýningarskrá er velt upp ágengum spurningum um líf og dauða listverka:

„Ef enginn fylgir tilmælum verkanna, er verkið þá til? Og ef einhver gerir það, hvað er þá raunverulega að birtast: verkið eða manneskjan sem stígur inn í það?“

Hvort sem gestir velja að fylgja fyrirmælunum eða láta það vera, er ákvörðunin sögð jafn merkingarbær. Sýningarstjóri sýningarinnar er Daría Sól Andrews.

Geometría, ógn og von

Á sýningu Erlu Þórarinsdóttur, Ómur / Resonans, er sjónum beint að hreyfingu, endurtekningu og samfelldum línum í teikningum og geometrískum formum. Textabrot á borð við sænsku spurninguna „Kärnkraft eller kärlek“ (kjarnorka eða kærleikur) fléttast inn í myndmálið og skilja eftir sig ákallandi spurningar um samtímann.

Verk Erlu virka sem eins konar vitni samtímans, þar sem þau draga í sig pólitíska spennu og óstöðugleika heimsins án þess þó að binda sig við ákveðinn stað eða tíma. Í verkum hennar mætast ógn og von, eyðileggingarmáttur og samkennd. Sýningarstjórar eru Helena Solveigar Aðalsteinsbur og Helga Þórsdóttir.

Opnunin er opin öllum og listunnendur eru boðnir velkomnir að fagna þessum nýju sýningum á laugardaginn.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar